Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Side 33

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Side 33
PRESTSSETRIÐ. 31 Hugraunin og sársaukinn var bundinn við hann, en það var svo langt frá því, að hún bæri kaia til hans eða ásakaði hann. Hann varð henni æ hjartfólgnari, og hún gat aldrei gleymt honum nokkra stund. Hún var hirðusöm og reglusöm við störf sín, eins og áður, en samt gat hún aldrei gleymt honum. Alstaðar var eitthvað, sem minti hana á hann, bæði í húsinu og í garðinum; henni fanst hún æfinlega mæta honum í dyr- unum, þar sem hann hafði staðið, þegar hann hafði talað við hana fyrsta sinni — en hún hafði aldrei síðan komið upp á Kóngshaug. Þar hafði hann tekið hana í faðm sinn, og — kyst hana. Presturinn var mjög áhyggjufullur út af dóttur sinni, og var sífelt að hugsa um, hvað að henni mundi ganga, En í hvert skifti sem hann myntist orða læknisins, varð honum að hrista höfuðið. Honum gat ekki komið það til hugar, að ómerkilegur flagari hefði getað brotið þær verjur, sem hann hafði gefið henni. * * * * * * * * * Vorið liafði komið seint, en haustið varð ekki á eftir tímanum. Á hlýju og fögru sumarkvöldi byrðjuðu haustrigningarnar. Pað var rigning daginn eftir, og svo hélt rigningunni áfram — æ kaldari dag frá degi - í samfleytta ellefu sólarhringa. Loks stytti upp; en nóttina eftir var fjögra gráða frost. Blöðin á trjánum héngu niður og voru öll samanlímd eftir rigninguna; og þegar frost- ið var búið að þurka þau á sína vísu, hrundu þau unnvörpum til jarðar, undir eins og vind- urinn andaði á þau. Ráðsmaðurinn á prestssetrinu var einn þeirra fáu, sem búnir voru að ná korninu í hlöðu fyrir rigninguna; og nú átti að fara að þreskja það, meðan nóg var vatnið til þess. Litli læk- urinn niðri í lægðinni beljaði áfram, kolmó- rauður eins og kaffi, og hvert einasta manns- barn á prestssetrinu var örnium kafið við að stunda þreskivélina, og aka korninu upp og niður bæjarásinn. Hálmstráin lágu í garðinum alt í kringum • bæjarhúsin; og vindurinn læddist inn á milli húsanna, tók í lurginn á hafrahálminum, reisti hann upp á endann, og lét svo stráin dansa til og frá eins og gular afturgöngur. Pað var ungi haustvindurinn, sem var að reyna sig; en þegar líður að vetri, og hann er búinn að fá sterk lungu, þá fer hann að leika sér að þaksteinum og reykháfum. Pað sat grátitlingur á hundabyrginu. Hann var allur í einum hnút og dró saman hálsinn, svo að hann fól næstum höfuðið í fiðrinu, lygndi augunum, og lézt aldrei taka eftir neinu. En hann tók vel eftir því, hvar korninu var hlaðið, og setti það vel á sig. Pessi sami grátitlingur hafði verið fremstur í flokki í titl- ingabardaganum um vorið,og látið allra verst. En nú var hann orðinn hygnari og ráðsettari. hann hafði fyrir konu og börnutn að sjá, og vissi að það er gott að eiga eitthvað í vitum sínum til þess að grípa til í vetrarharðindunum. Ansgaríus litli hlakkaði til vetrarins; hann hlakkaði til þess að vera úti í hríðinni og snjónum, og að fara á kvöldin í kol-þreifandi myrkri niður í fjöru til þess að horfa á freyð- andi brimlöðrið. Hanti notaði sér skæning- inn, sem komið hafði á rigningarpollana um nóttina. Hann lét alla tindátana sína leggja út á ísinn með tvær stórar fallbyssur. Svo hvolfdi hann stórum bala á ísinn, og stóð sjálf- ur uppi á honurn. En skæningurinn þoldi ekki þungann, og ísinn smá seig niður, unz öll herfylkingin seig í kaf, svo að ekkert stóð upp úr nema fallbyssuhjólin. Pá æpti hann fagnaðaróp, og veifaði húf- unni. >Fyrir hverju ertu að hrópa?« sagði faðir hans, sem gekk yfir garðinn í sömu andránni. »Eg er Napóleon við Austerlitz,« svaraði Ansgaríus, himinglaður. Presturinn stundi þungan, og hélt áfram leiðar sinpar. Hann gat ekki skilið börnin sín —.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.