Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Blaðsíða 38
36 NÝJAR KVÖLDVÖVUR. hvítar. Hún fann það var í fyrsta sinn, sem hún hataði mann, sem hafði sagt við hana blóðsár stygðaryrði og trúði ekki svo mikið sem á töframagn fegurðar hennar. Yfir þessu eina orði gleymdi hún öllu öðru, sem hann hafði sagt, enda hefði hún ef til vill orðið að kannast við, að það væri satt, þegar hún stilt- ist betur. Hún hafði ekki heyrt, að það óm- aði hrygð og meðaumkvun í orðum hans, og ekki fundið, að honum mundi finnast manna mest til um fegurð hennar, ef alt annað færi eftir henni. Alt það, sem ólgaði í brjósti hennar, hnipr- aðist saman í það eitt, að hún yrði að hefna sín, og það tilfinnanlega, og þó að knýja hann til þess um leið að falla að fótum sér í stjórn- lausri ást, biðjandi vægðar, náðar og líknar, til þess að geta sparkað honum frá sér með fyrirlitningu. Ressi drambláti maður átti að auð- mýkjast, og það tilfinnanlega. Hún gat ekki um annað hugsað — hún ætlaði að ausa öllum sínum yndistöfrum yfir hann, látast vera bráðskotin í honum — og byrja undir eins í dag við vorhátíðina. Og það átti að verða yfirbót Líane, þess- arar ósvífnu þernu, sem var svo djörf að lyfta augum sínum upp til tigins manns. Djúpt skyldi hún hrapa ofan í vesaldóminn þann, að vera ekki neitt. II. Fám stundum síðar streymdi marglitur mann- grúinn eins og brimrastir eftir götum borgar- innar. Hávaðinn og skarkalinh í verkstæðun- um og smiðjunum þagnaði, auðmennirnir stöð- vuðu hesta sína og þjónalið, blæjubúið kven- fólk tylti sér á tá, hálfnaktir beiningamenn og org- andi förumunkar steinþögnuðu — og allir góndu í sömu áttina: til enda sölutorgsgötunn- ar. Rað var ekki svo oft, sem keisarinn lét sjá sig úti eins og nú á vorhátíðinni. Konungur konunganna hreykti sér þar í lokuðum, glæsilegum glervagni; hann var föl- ur í andliti með biksvarta kampa, er skiftu andlitinu í tvent um þvert. Manngrúinn hneigði sig í auðmýkt, er hann sá hinn almáttuga drottinn, og hann kinkaði aðeins kollinum til vinstri handar, og starði síðan harðneskjulega og kuldalega framundan sér; svo bauð hirð siðareglan. Rauðklæddir hlauparar með silfurbúnum stöfum ruddu brautina í gegnum mannþyrping- una; næstir þeim komu síðan riddarar með langár kesjur, og síðan keisaravagr.inn. Rar á eftir var mesti sægur embættismanna, herfor- ingja og þjóna, sem aidrei ætlaði að taka enda. Böðullinn var líka með í förinni með tæki sín, til að fullnægja refsingu, ef á þyrfti á að halda. Rað er ætið gert um leið og dómur er feldur. Hafði hann því alt það með sér er þurfti til iljastroku, bæði fótalása og reyrprik, á múlasna, sem hann teymdi með sér. Næstar honum komu síðan konur kvennabúrsins í lokuðum burðarstólum, er voru fluttir á kviktrjám yfir tvo hesta. Fylgdi þeim ógurlegur skari þjóna. Sundraðist þá manngrúinn til beggja handa, því þung refsing lá við, ef litið var í áttina þangað, er gyðjur þessar voru á ferð; en í dag vildu allir ganga heilum fótum. Manngrúinn var á hvíldarlausu iði fram og aftur innan um keisaragarðana, því að nú voru þeir öllum opnir, og voru allir hinir kátustu og höfðu augun hjá sér; sátu þar víða smá- hópar af blæjubúnum stúlkum, og skutu stund- um blæjunum frá, til þess að láta sjá framan í sig og í augu sín hin tindrandi og fögru. Ó- giftar konur eru ekki nærri því eins bundnar með Persum eins og kvennabúrskonur. Rað leið langur tími áður en Miriam gat komið auga á fjárstjórann. Hún sá hann að sönnu við og við, en gat ekki náð að kom- ast nærri honum. Henni fanst hann nærri því forðast sig. Alt í einu kom uppþot nálægt aðalhliði garðanna, þar sem matsuðumenn höfðu hlóðir sínar, og bakarar, aldinsalar og slátrarar höfðu sett söluborð sín, varð af því troðningur mik- ill og hávaði. Miriam smeygði sér inn í þyrp- inguna. »Hefir nokkurt óhapp viljað til, Marjah?«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.