Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Qupperneq 30

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1910, Qupperneq 30
28 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. sveitalegt nema réttirnir, það væru alt kaup- staðarréttir, og sagði, að þar sem þeir væru að borða í sveit, þyrfti að vera súrmjólk á borðinu. Rebekka stóð þegar upp frá borðinu, og bað leyfis að mega fara og sækja súrmjólkur- skál, og gekk síðan út til þess að sækja hana, og heyrði ekki einusinni mótbárur konsúls- frúarinnar. »Lofið þér mérað hjálpa yður, ungfrú« hróp- aði Lintzow, og stökk á eftir henni. Bpetta er fjörugur piltur,* sagði prestur- inn. «Já, það er hann,« svaraði konsúllinn, «og auk þess er hann ágætur verzlutiarmaður. Hann er búinn að vera mörg ár erlendis, og nú er hann orðinn meðeigandi verzlunar föðursíns.>' «En eg er hrædd um að hann sé heldur óstöðuglyndur,« sagði frúin hikandi. «Já, það held eg áreiðanlega,» sagði Frið- rika, og stundi þungan. Lintzow fór með Rebekku gegn um allar stofurnar og út í mjólkurbúrið. Henni var raun- ar ekkert um það gefið, þó að hún væri í aðra röndina montin af búrinu En hann hló svo skemtilega, að hún mátti til að hlæja líka. Hún rétti upp hendurnar, og ætlaði að taka eina mjólkurskálina á efri hyllunni. «Nei, nei, ungfrú, það er alt of hátt fyrir yður, eg skal ná fatinu,» kallaði Lintzow, og tók um hendurnar á henni. Hún kypti að sér höndunum. Hún fann að hún blóðroðnaði, og henni fanst sem hún mundi fara að gráta. Rá Ieit hann undan, og varð alt í einu stiltur og alvarlegur. «Eg bið yður að fyrir- gefa mér, ungfrú Rebekka, sagði hann. »Eg finn það, að framkoma rnín gagnvart annari eins stúlku eins og yður, er alt of gáleysisleg og léttúðug. En mér þætti svo mikið fyr- ir því, ef þér hélduð, að eg væri ekkert annað en lauslyndur spjátrungur, eins og eg kem öðruin fyrir sjónir. Rað eru sumir, sem þurfa að vera kátir til þess að dylja harma sína, og aðrir sem hlæja til þess að verjast grátinum. Hann leit upp, þegar hann sagði síðustu orðin. Augnaráðið var svo þunglyndislcgt, og þó svó auðmjúkt, að Rebekku fanst hún hafa verið vond við hann. Hún hafði oft tekið ýmislegt úr hyllunni, en þegar hún rétti hendurnrr aftur upp til þess að taka skálina, Iét hún þá síga niður aftur og mælti: «Nei, eg held annars að það verði of hátt fyrir mig.»' Rað var bros á vörunum á honum, þegar hann tók mjclkurskálina með varakárni niður af hillunni cg bar hana út, Rebekka gekk með honum, og opnaði fyrir hann hurðirnar. Hún tók vel eftir honum í hvert skifti sem hann gekk fram hjá henni. Frakkinn hans, flibbinn og hálsklúturinn voru alt öðru vísi en á föð- ur hennar, og það var einhver einkennilegur ilmur af honum, sem hún þekti ekki. Regar þau komu að garðshliðinu, stóð hann við snögvastg og leit upp, brosti þung- lyndislega og sagði: «Nú ætla eg að gefa mér ofurlítinn tíma til þess að koma gleðisvip á andlitið aftur, svo að engan gruni neitt.» Síðan steig hann út á þrepið og kastaði gamanyrðum á fólkið, og Rebekka heyrði að því var svarað með skeliihlátri. En hún varð eftir inni í stofunnu. Veslings maðurinn! en hvað hún kendi í brjósti um hann! Rað var undarlegt, að hún skyldi vera eini maðurinn, sem hann tryði fyr- ir hugsunum sínum. Hvaða sorggat það ver- ið, sem hann bjó yfir. Skyldi hann líka hafa mist móður sína? Eða var það eitthvað enn þá þungbærara? En hve hana langaði til að hjálpa honum, ef hún gæti það. Regar Rebekka kom út, var hann aftur orð- inn kátastur allra þeirra, sam við borðið sátu. En hann leit stundum til hennar, og þá sýndist henni augnaráðið verða snöggvast svo þunglyndislegt og biðjandi; svo fór hann aftur aðhlæja í sömuandránniogþaðféll hennisvo illa. Loks ætluðu gestirnir af stað, og allir kvödd- ust með hinni mestu vináttu,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.