Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 7
Helgi Vaitýsson: I Austfjarðaþokunni. i. Austfjarðaþokan hefur ótal andlit. Stundum er hún sólhvít og broshýr, létt- stíg og ljúf, eins og kóngsdóttur í álög- um ber og sómir. Þá dansar hún á draumbláum fjallatindunum, unz himin- bláminn tekur hana í faðm sér og hylur hana í sólbryddri skikkju sinni. Stundum beltar hún sig eins og breiður, glitofinn 'lindi um miðjar hlíðarnar og sýnir lit- skraut Austfjarðafjallanna skýrara og skærara en nokkru sinni ella. Hitt veifið getur hún verið hundblaut, úlfgrá óvættur, sem flatmagar yfir allan Flóann og andar hráslaga, ógnum og öm- urleik framan í sjómennina. Þá er Aust- fjarðaþokan í almætti sínu. Heimasætan frá Hafgörðum á yztu miðum. Þá heldur hún í heimsókn til nesjamanna og dala- bænda. Þeir búa á láglendinu og er því engin þörf að halda sér til fyrir þeim. — Smábátarnir hverfa á örstuttu færi, og á hafskipunum sér ekki frá stjórn að stefni. Rá og reiði verða að risa- vöxnu æfintýri langt úti og hátt uppi í takmarkalausum geimi. Og óvætturin skríður inn Flóann, rétt svo, að hún hylur siglutoppa stærstu skipanna. Hún fyllir firðina, rís svo upp á afturfótunum, steypir sér inn yfir dal- ina og barmafyllir þá á svipstundu al- veg upp undir fjallabrúnir, svo sláttu- fólkið gaufar í myrkri og gremju niðri a blautum engjum, hulið þokugrárri úða- hrynju frá hvirfli til ilja. En uppi á fjallabrúnunum er glaða N.-Kv. XXXVIII. árg., 1.-3. h. sólskin, grænir hagar, lyngrauðir móar og mosabrún börð og flesjar, kvíablakk- ar ær á beit og kátir smalar. Heiðmyrkr- ið er eitthvert inndælasta æfintýrið í hjásetunni austur þar! Allur himingeim- urinn barmafullur af sótsvartri þoku upp að fjallabrúnum. En allt yfirborðið er sólhvítt og silfurgrátt haf með undra- fögTum bylgjum og bárudölum. Storm- úfið haf í kyrrð! — Hreyfingarlaus himnasmíði mótuð og steypt úr mýksta efni. Og á þessu töfrahafi synda fjalla- tindarnir eins og draumbláar og hvit- bryddar æfintýraeyjar með sólhvíta brimgarða hreyfingarlausa með strönd- um fram, eins langt og augað eygir í norður og suður. Aldrei er sólin bjartari, sólskinið hlýrra né háfjalladagurinn indælli og elskulegri en á Austfjarðafjöllunum í heiðmyrkri! Slíka daga standa smalarnir hreyknir á klettabrúnunum og horfa með fullorð- inslegum meðaumkvunarsvip ofan í botn- laust myrkrið. Þarna óralangt niðri í kafinu er aumingja engjafólkið í myrkri og bleytu og kulda! En sá munur! Hérna þorir þokuskömmin ekki að liætta sér lengra en rétt upp að tánum á sólinni, sem stendur brosandi á efstu klettabelt- unum. Hætti hún sér hærra, brennur hún upp til agna á svipstundu. En áleitin er hún samt. Hvar sem gjóta er eða sprunga leitast hún við að smeygja inn fingrunum og klifra upp í laumi. En gái sólin ekki að þvi í tæka tíð, þá eru þó 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.