Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Qupperneq 8

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Qupperneq 8
2 NÝJAR KVÖLDVÖKUR strákarnir vakandi og á varðbergi. Þeim er alltaf uppsigað við þokuna. Hún er erfðaóvinur allra smala á Austurlandi. — Þeir taka því á moti henni með grjót- kasti og siga hundunum á hana, svo að hún verður að snauta öfug ofan aftur. Og svo líta strákarnir hröðugir og bros- andi framan í sólina: »Svona á ’ún að hafa það, ókindin sú arna! — Þetta er ’enni mátulegt!« Og sólin er þeim alveg sammála. Hún skín brennandi heitt út yfir Víðátturnar og Fláakinnina. Og ærnar leggjast jórtr- andi niður í forsælunni, og strákarnir stökkva strípaðir út úr fötunum, og fara að busla í tjöminni meðfram síðustu ísskörinni. En gráflekka gamla, * sem alltaf stelst úr hjásetunni, hefur lagzt undir stóra steininn gráa efst í Kinninni. Og er hún verður þess vör, að strákarnir hafa öðru að sinna, rís hún upp og læðist gætilega upp lækjarfarveginn, unz hún hverfur upp af brúninni. Þá tekur hún á rás og sést hvergi þegar að er gáð. — En niðri í hlíðinni hnyklar Austfjarða- þokan brýrnar og hugsar strákunum og sólinni þegjandi þörfina. Hún man svo sem eftir öllum þeim skiptum, sem hún hefur unnið á sólinni hérna eystra, slökkt hana algerlega um hádaginn, vafið sig hráblaut og nöpur utan um smalastrák- ana, svo þeir hafa orðið að vælandi ve- sælingum og týnt úr hjáseturini og feng- ið skammir og skell í viðbót, er þeir komu heiln aftur. Ha-ha-ha! Það var þeim mátulegt, peyjunum þeim arna! Og sólartetrið, hún er nú svo sem ekki almáttug heldur héraa á Austfjörðum! O-sei-sei-nei! Þokan hestímeraði hana ekki meira heldur en hvern annan Hornafjarðarmána! Það mátti hún vita, sú góða kona. — Það sat svo sem ekki á henni að hreykja sér hátt og blamera náungann, þótt hún gæti látið sjá fram- an i smettið á sér um hádaginn í björtu! Óekki! — Hún verður þó alltaf að skríða í felur að fjallabaki á kvöldin, maddama góð, og þá ræður þokan völdum bæði hátt og lágt. Sú hin eina og sanna sæ- borna Austfjarðaþoka! — Gái hún að sér, kindin hún sumarsól, og þakki hún sínum sæla og þokunni fyrir að fá að skína — svona öðru hvoru — og þótt eigi sé nema á fjallatindunum innan um skitnar kvíarollur og strípaða stráka! — Og sér er nú hvert gamanið! — En það skal ég segja henni, þeirri snoppufríðu stássmey, að Guð borgar fyrir hrafninn. En Austfjarðaþokan borgar fyrir sig! II. »Já, segið þið mér ekki af henni »Aust- fjarðaþoku«,« mælti Vernharður gamli formaður og tók ríflega upp í sig. —- »Ég held nú svo sem að ég ætti að vera farinn að þekkja hana, eftir hálfrar ald- ar sambúð við hana á sjó og landi. —- Stundum er þetta hreinasta mdrmtásaf svo það mætti hæglega troða henni allri í meðal ullarpoka norðan frá Langanesi suður að Papey. Og þá er hún svo sauð- meinlaus, að það má varla blaka við henni. — En það er svo sem ekki lengi að þykkna í henni, og þá getui' hún á svipstundu orðið svo svört og stinn, að- það gengur ekki í hana enskur hnífur, og er það þó ósvikið stál, piltar mínir! — Já, við höfum marga hildi háð hérna úti fyrir, og mátti oft ekki á milli sjá, hvort okkar bæri sigur úr býtum. En þó ég segi sjálfur frá, býst ég nú samt við, að það hafi verið ég, sem jafnan var hlut- skarpari og þyiigri á árinni. Enda er nú við kvenmannsvæflu kappi að etja, þar sem þokan er. — En satt er það, að Austfjarðaþokan á ekki sinn líka á öllu þessu landi', og þótt víðar sé leitað. Það hef ég sannfrétt, enda er reynslan ólygn- ust, eins og dæmin sanna.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.