Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Qupperneq 15

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Qupperneq 15
Percy F. Westerman: Æfintýri úr íshafinu. Jakob Ó. Péluisson íslenzkaði. I. Ásiy'Iing. — Ég fékk því framgengt, Guy! kall- aði Leslie Ward ákafur. Runswick gamli er drengskaparmaður. Hann ætlar að taka okkur báða í viku ferð. Skútan fer með kvöldflóðinu. Leslie Ward, sonur alþekkts raffræð- ings og félagi hans, Guy Anderson, dvöldu leyfistímann í litla fiskiþorpinu Pilgrimswick, sem lá á afskekktum stað á Yorkshire-ströndinni. Vináttan milli þessara tveggja drengja var aðeins nokkurra vikna gömul; en það var vinátta, sem forlögin höfðu á- kveðið að endast skyldi alla æfi þeirra, grundvölluð á sameiginlegum hættum og æfintýrum. Drengirnir voru báðir fimmtán ára. Leslie Ward var hár, herðabreiður og vel vaxinn og virtist eldri en hann var i raun og veru. Þekking hans á vélfræði og eðlisfræði var víðtæk, og jafnvel fað- ir hans neyddist til að viðurkenna, að hann liti út fyrir að verða ágætur mann- virkjafræðingur. Guy Anderson var öðruvísi mótaður. Hann var þrem þumlungum lægri en fé- lagi hans og skorti nokkuð á líkamsþrótt Leslies; en hann var vel vaxinn og gat þolað ýmiskonar hrakninga. Þeir höfðu áður fengið leyfi foreldr- auna til að leggja í ferð með fiskiskút- unni »Laughing Lassie« og nú var bara eftir að útvega nægilegan klæðnað og vistir til fararinnar. — Gott kvöld, piltar! rumdi í Runs- wick skipstjóra, þegar drengirnir komu um borð um kvöldið. Þá kom hann auga á stóru nestiskörfuna, sem þeir höfðu með sér og bætti við: Hvað á þetta að þýða? Haldið þið, að þið fáið ekki nógan mat á skipinu? — Jú, jú, Runswick skipstjóri, flýtti Leslie sér að segja, — þetta er bara framlag frá okkur. Við göngum út frá, að allir leggi eitthvað af mörkum í vista- foröann. ■— Nú, jæja, svaraði skipstjóri kulda- lega. Grípið nú hvor ykkar kaðal og tog- ið í eins og þið getið! Förin til fiskimiðanna var hafin fyrir alvöru. Runswick hafði stýrt »Laughing Las- sie« nálega fjörutíu ár. Skútan hafði á engan hátt verið ný, þegar hann í fyrsta skipti steig á þilfar hennar, en eins og svo mörg önnur veiðiskip á Norðursjón- um, var þessi tvímastraða skúta úr góð- um viði. Hún var nú orðin veðurbarin en hafði þó góðan hraða. Enginn dirfðist að leggja henni hnjóðsyrði í návist skip- stjórans. Skipstjórinn var maður af gamla skól- anum. Hann þekkti fiskimiðin eins vel vel og Lundúnabúi þekkir »Strand«, — og jafnvel ennþá betur. Og leiðina þang- að rataði hann án þess aö nota sextung1). Leslie og Guy sváfu illa um nóttina. Rekkjurnar voru óþægilegar; það brak- J) sekstant. 2

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.