Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 16
10 NÝJAR KVÖLDVÖKUR aði, hrikti og buldi í skipinu, og loftið var þungt. Þeir urðu því fegnir, er þeir gátu farið upp á þilfar, er dagaði. Það var dásamlegur morgunn. Sólin var nýkomin upp yfir lágan þokubakka neðst við sjóndeildarhringinn. Hœgur svali gáraði hafflötinn. Á allar hliðar mættust haf og himinn í óbrotinni línu. Hvergi var segl sýnilegt. Af skipshöfninni var aðeins einn kom- inn á þilfar. Það var Pétur, skipsdreng- urinn, sem stóð við stýrishjólið og stýrði eins vel og þaulvanur sjómaður. — Góðan daginn, Pétur! sagði Guy. Það er útlit fyrir bezta veður. — Ekki fyrir okkur, svaraði Pétur mannalega. Það er gott fyrir fólk á skennntisiglingu. En golan hverfur, þeg- ar sólin kemur upp, og líklega verður þoka. — Hvar getum viö þvegið okkur? spurði Leslie hógværlega. Pétur glotti. — Það er segldúksfata þarna frammi á, svaraði hann. Klæddu þig úr og fáðu vin þinn til að hella vatni yfir þig. Þannig förum við nú að hérna. Eins og Pétur hafði sagt fyrir, lægði goluna og það varð blæjalogn. Leslie og Guy fóru útbyrðis til að synda og voru síðan dregnir upp í skipið á kaðli. Það sem eftir var dagsins mjakaðist »Laughing Lassie« letilega áfram, þar til einni klukkustund fyrir sólarlag, að hressandi gola fyllti segiin. Runswick skipstjóri skýrði frá því, að netin yrðu lögð út óðar og skútan kæmi á miðin. Það yrði næturvinna, sagði hann, en ungu mennimir mundu áreiðan- lega geta sofið, þrátt fyrir hávaðann. — Við viljum heldur vera á fótum, ef þér hafið ekkert á móti því, sagði Leslie og hugsaði um leið til hörðu fletanna í litla klefanum. Og svo var það líka til- gangur ferðarinnar að sjá netin dregin upp, full af giitrandi fiski. — Nú, jæja, svaraði Runswick stuttur í spuna. Við getum líka sjálfsagt haft not af ykkur. Eftir ráðleggingu skipstjórans gengu þó drengirnir til rekkju með því loforði, að þeir skyldu verða vaktir, þegar netum yrði varpað. Svo ólíklega fór, að þeir sváfu eins og steinar til klukkan eitt, er Pétur drap fast að dyrum og sagði, að allt væri und- irbúið. Þeir settu upp þykka vettlinga og gengu upp á þilfar. Tvö ljósker héngu niður úr framsiglunni og lýstu yfir þil- farið. Að öðru leyti var niðamyrkur. Engin stjarna var sjáanleg. Veðrið var nálega kyrrt, sjórinn hreyfingarlaus og maurildin lýstu kynlega í vatninu. Drengirnir hjálpuðu til að gefa netin út, meðan skútan seig rólega áfram. — Allt komið út, skipstjóri! sagði einn hásetinn að lokum. En undarlegt þætti mér ef ekki kæmi þoka. Á skömmum tíma var »Laughing Las- sie« líka svo umvafin þéttri þoku, að ó- gerlegt var að eygja ljóskerin aftan af skipinu. — Þetta er svart! hrópaði skipstjóri. Pétur, hlauptu niður eftir þokulúðrinum! Þú færð rétt aðeins að þeyta hann. Guði sé lof, við erum þó ekki á venjulegri gufuskipaleið, bætti hann við lágt. Kaldur suddi kom úr þokunni, og drengjunum var kalt, þrátt fyrir þykku vettlingana, sem þeir höfðu á höndunum. — Ekkert að gera nú sem stendur, sagði skipstjórinn og var nærri hlaup- inn á gesti sína, þegar hann fór fram á skipið. Farið niður í káetu. Ef þokan fer ekki, drögum við netin inn fyrir dögun. Ef ykkur langar svo til að sjá það, skal ég kalla á ykkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.