Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Blaðsíða 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Blaðsíða 35
SYNIR ARABAHÖFÐINGJANS 29 og þó höfðu þeir ætíð komið heim heilir á hófi. Og hversvegna ættu einhver óhöpp að steðja að einmitt núna. Hún leit á klukkuna. Það var liðið langt á dag. Bráðum myndi Gaston koma með síðdeg- isteið. Hún yrði sveimér að herða upp hugann! Eftir á ætlaði hún að ríða spöl- korn út á eyðimörkina. Friða hugann og ná sér aftur. Það var alltaf heilsubót I hverjum spretti. Gaston kom inn, bjarteygur og broshýr, eins og hann var vanur, og bar fram teið. „Einn dagurinn enn, Gaston“, sagði hún og brosti angurvært. Þótt það gengi honum til hjarta að sjá og heyra hina kæru húsmóður sína sorg- bitna, lét hann, sem ekkert væri og brosti áný. „Enn einn dagur, madame, — já, það er svo — en ef til vill síðasti dagurinn á þann hátt“, sagði hann glaðlega, þótt hann í rauninni meinti allt annað. Hún yppti öxlum. „Incha Allah“, sagði hún á tungu þeirri, sem nú var orðin henni jafntöm og hennar eigin tunga. „Já, madame, eins og Guð vill“, svaraði hann og vék samtalinu þegar að öðru. „Madame var að tala um bréf — til monsieur Comte. ... “ Díana gat eigi annað en dáðzt að bjart- sýni hans og glaðværð, hvor.t -sem það var raunveruleiki eða látalæti. Hún stundi lítið eitt og rétti honum bréfið. „Sendu það af stað í kvöld áleiðis til Touggourt, og láttu þá fara tvo saman, ef nokkuð skyldi verða að. — Og, Gaston, ieggðu svo á hestana og hafðu þá tilbúna eftir tíu mínútur“. „Bien, madame“, sagði hann rólega og tók við bréfinu og var í þann veginn að fara út, er hún kallaði á hann. „Heyrðu, Gaston. .. . Hún þagnaði allt 1 einu og beit á vörina. „Madame“. Gaston kom hægt inn aftur og stóð kyrr og beið og horfði alvarlega á hana. „Gaston, heldurðu. ... “ Hvort hann héldi? Hamingjan góða, þegar fyrir mánuði síðan var hann tekinn að óttast hið versta.... En enginn skyldi komast á snoðir um þennan ótta hans. Hann svaraði því nærri því harðneskju- lega: „Nei, madame, ég held það ekki, og það mun líða langt, áður en ég trúi því, sem þér eruð að hugsa um núna“, sagði hann þvert á móti sannfæringu sinni. En þetta svar hans jók aðeins óró henn- ar og kvíða. „Monseigneur hefir verið svo lengi í burtu, ég er orðin svo hrædd — svo hrædd“. Hún hvíslaði síðustu orðin. ■-=- „Ég er svona bleyða, Gaston, aumasta bleyða.....“ Nýjum bjarma brá fyrir í augum hins trygga Frakklendings, og sem allra snöggvast gleymdi hann vanalegu rólyndi sínu. ... „Þér bleyða, madame! Hamingjan gefi, að vér hefðum marga eins og yður“, sagði hann hlýlega. Svo flýtti hann sér út. Hann var lengi að jafna sig aftur. Hann var því eigi vanur að missa taumhaldið á geðsmunum sínum, og honum gramdist, að svo skyldi hafa farið núna. Hann varð því að svala sér á því, að skeyta skaps- munum sínum á sendimönnunum tveim- ur, sem áttu að fara með bréfið, og hellti yfir þá heilli dembu af illyrðum, áður en þeir lögðu af stað. Honum hægði nokkuð við það. En hann kveið því að koma aftur fyrir augu húsmóður sinnar. Díana lét ótta sinn eigi í Ijósi við neinn annan en Gaston. Er hún kom ferðbúin út úr tjaldinu, var hún róleg og brosandi eins og áður. Hún gekk að hestinum, svarta folanum, sem var uppáhaldshestur höfðingjans. Hann var styggur og tryllt- ur við alla aðra en hana og höfðingjann,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.