Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Page 48
42 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hafði tengzt ástar- og tryggðaböndum við fólkið í Arabíu og gat því aldrei komið til hugar að bregðast því. Og ættstofn Ahmed Ben Hassans er mjög ólíkur þeirn mönnum, sem þú hefir séð til þessa. Þeir eru sjálfbyrgingslegir hermenn, og reynir því bæði á hreysti og hugkvæmni að halda þeim í skefjum. Þú mátt eigi ætla, að líf föður þíns sé neinn leikur. Og þótt eigi hefði verið nein ástæða til þess — hm — að láta undir höfuð leggjast að fara til Englands, þá hefði hann sennilega samt ekki farið. Hann myndi hafa talið það órétt gegn sinni eigin ætt“. Caryll lét nú greinilega í ljósi fyrirlitn- ingu þá, er fyllti huga hans. „Nei, ég get svo sem búizt við, að hann hafi eigi getað treyst þessu „fólki sínu“ svo langan tíma, sem þurft hefði til þess að bregða sér til Englands. Jú, jú, það eru kyndugar kringumstæður. En þótt þann- ig sé nú ástatt með hann, get ég eigi hugs- að mér, að móðir mín sé bundin sömu skyldum og hann“. Rödd piltsins varð viðkvæm og angur- vær að öðrum þræði, þótt hún á hinn bóginn titraði af gremju. „Á henni hafa einnig hvílt margar skyldur, Caryll. Og hún hefir haft marg- ar byrðir að bera. Hún hefir starfað óslit- ið að því að bæta aðstöðu kvennanna. Það er t. d. eingöngu henni að þakka, að hin skæða augnveiki, sem geisaði hér áð- ur fyrr, er nú svo að segja úr sögunni“. „O, nei, hún hefir víst ekki mátt vera að því að hugsa um son sinn“, greip Ca- ryll fram í. Saint Hubert skipti litum. — „Gáðu að því, hvað þú segir, Caryll. Hefði það verið óhjákvæmileg nauðsyn, að hún færi til Englands, myndi hún hafa rutt úr vegi öllum tálmunum og rifið sig lausa. En þú verður að muna, að þú hefir aldrei verið veikur og aldrei legið, og þú ert sterkur og hraustur eins og björn. Þú mátt samt ekki halda, að móður þína hafi eigi alltaf langað til að sjá þig. Það hefir einmitt verið sárasta sorg hennar í lífinu að þurfa að skiljast við þig og vera í fjar- vistum við þig. En til þess eru margar ástæður, að hún hefir aldrei getað komið til þín. Faðir þinn ann henni mjög, og eins og eðlilegt er, hefir hann sömu skoðun á þeim málum og fólk hans. Hann hefir því — það er að segja, hann hefir eigi get- að... . Saint Húbert varð orðaskortur, og Caryll kom honum því til aðstoðar á kald- hæðnislegan hátt: „Vertu ekki að þessu, Raoul frændi, segðu heldur blátt áfram að hann hafi neitað henni að fara“. Saint Hubert varpaði öndinni mæði- lega. Honum virtist samræða þessa vera orðin nógu löng og kinkaði því aðeins kolli. Honum var á móti skapi að reyna að afsaka það, sem honum geðjaðist eigi að. Honum þótti mjög vænt um Caryll, og engum var það ljósara en einmitt honum, hve erfið og ill aðstaða piltsins var um þessar mundir. Það var eigi fyrr en í þessari löngu ferð þeirra, að þeir höfðu átt með sér rækilegt samtal eins og góðir vinir. Allt til þessa hafði pilturinn verið háður siðvenjum og háttum og því staðið honum fjarri. Á leiðinni til Biskra og síðan á hinni löngu reið til Touggourt hafði Caryll ver- ið berorður um allt, er að höndum bar og honum datt í hug. Hann hafði fundið að öllu og dæmt um allt án rækilegrar yfir- vegunar. Hann gat t. d. ekki séð hér neina náttúrufegurð, og virtist helzt, að honum væri meðfædd óvild og hatur til þjóðarinnar og landsins. Honum varð alltaf að hugsa til þess, hve óhreinir landsmenn voru undir hinum litskrúðugu búningum sínum. Og dvöl hans í Touggourt hafði heldur eigi á nokkurn hátt mildað dóma hans um

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.