Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 21

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 21
N. Kv. MEÐ BENEDIKT SVEINSSYNI 59 r að Armótaseli. Sýslumaður nam staðar. ..Þér eruð dálaglegur fylgdarmaður. Treyst- ið slóð, sem vel getur legið til Helvítis. Ekk- ert vitið þér nema maðurinn liafi villzt og aldrei náð til byggðra bóla. Það er auðsætt, að þér ratið ekki og ekkert að reiða sig á yður.“ Það þykknaði í mér. „Þér eigið um þrjá kosti að velja. Sá er binn fyrsti að skreiðast heim í kotið aftur, en eigi fylgi ég yður þann spotta. Annar að grafa sig í fönn og bíða þar til upp birtir. Hinn þriðji að fylgja mér, því að austur held ég.“ Sýslu- maður rumdi við og þrannnaði af stað. Á Sænautaseli hafði slegizt í för með okkur maður nokkur austan af Jökuldal, Bergþór að nafni. Lét hann mjög móðan mása, en bafði undra ljótan og leiðinlegan málróm, Virti sýslumaður hann aldrei svars né viðlits, en ég liélt uppi samræðum við þá til skiptis. Einu sinni, er ég átti orðastað við Berg- þór, sagði sýslumaður byrstur í bragði: ..Anzið þér ekki helv. . . . karlinum. Þetta er sá andstyggilegasti málrómur, sem ég hefi heyrt.“ Ég hummaði skipun sýslu- manns fram af mér, en aldrei veik hann einu orði að Bergþóri. Veðrið lægði, er á daginn leið, og segir ekki af ferðum okkar fyrr en komið var austur að Gilsá. Rennur hún í alldjúpu gili. Var þar bratt niður að fara, en glerhált hjarn í gilbörmunum, og eigi önnur fótfesta en einstakar steinnibbur, er stóðu upp úr freranum. Leizt sýslumanni illa á og treyst- ist eigi til niðurgöngunnar. Ég hafði með- ferðis alllangt reipi, og stakk upp á að binda því utan um hann, og færi hann niður fyrst, en ég héldi í taugina á brúninni. Benedikt brást í fyrstu illa við. „Sjáið þér ekki, mað- ur, að leiðin liggur skáhalt niður, og hvaða gagn er þá að þessu reipi yðar, ef eitthvað ber út af?“ Ég kvað það einu gilda, hann mimdi aldrei skrika lengra, en reipið næði. Ekki lét hann sér það skiljast fyrst í stað, en með því að eigi var annarra kosta völ, hvarf hann að ráðinu með þessum orðum: „Jæja, ég felst á þetta, en látið þér samt lielv. . . . karlinn fara fyrstan.“ Var það Bergþór, og fór hann í reipinu niður og tókst vel. Er sýslumaður skyldi leggja af stað, stanzaði hann enn á brúninni og sneri sér að mér: „Við erum jafn-illa staddir fyrir þessu, eða liver á að halda í reipið fyrir yður?“ Mér var farið að leiðast þófið, greip í handlegg honum og sagði hvatskeytlega: „Svona, hættið þér né þessu, og reynið að staulast niður. Eg mun sjá um mig.“ Móðurinn rann af sýslumanni. „Já, það er satt. Þér farið allt.“ Tókst okkur vel för- in yfir gilið og héldum sem leið liggur síð- asta spottann heim að Skjöldólfsstöðum. Dagsett var og alrokkið, er þangað kom, og enginn úti við. Bað sýslumaður mig að ganga inn og segja Jóni bónda, hver kominn væri. Ég kvaðst öllu og öllum ókunnur þar, en Bergþór mundi hins vegar vita þar á öllu dc-ili og mæltist til, að hann gengi í bæinn. Tók hann því vel og hvarf þegar inn í dimm göngin. Að vörmu spori kom hann aftur og segir drýgindalega: „Eg heimtaði Jón út.“ Sýslumaður hrást hinn versti við: „Bölvað- ur dóni getið þér verið. Heimtuðuð þér hann út.“ í sama bili kom maður út á hlaðið. Sýslu- maður vatt sér að honum, ávarpaði hann kunnuglega, faðmaði hann að sér og vildi reka að honum rembingskoss. Maðurinn srreittist á móti, en allt kom fyrir ekki, sýslu- maður kyssti hann, þúaði hann og bað Jón sinn að koma blessaðan og sælan. Maðurinn slundi upp, að hann væri ekki Jón bóndi

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.