Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 23

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 23
N. Kv. 61 SböpuníirsAgii sléttufglk/aitita miMu í Caimda Jónbjörn Gíslason þýddi úr ensku. — Síðari Jiluti. — Eitt af algengustu hliðstæðingum dino- sauranna var plöntuæta, er nefnd var co- rythosaurus, það dýr var 35 feta langt og fæturnir eins og litlir tréstofnar, en heilinn sem stjórnaði þessu 15 tonna þunga dýri, var smærri en í litlum hundi. Þegar það stóð á þurru landi, hefði þurft 25 feta lang- an stiga til að komast á bak þess. Nokkru minni var hinn grimmi og horn- átti styracosaurus, einn af íbúum Alberta; aftan við hausinn var stór beinkragi, er hlífði hálsi hans og herðum; kragi þessi var alsettur löngum og hreiðum broddum eða þyrnum. Höfuðið var 6 feta langt og fyrir ofan nasirnar var stórt horn eins og á nashyrningnum á okkar tímum. Þessi dýr voru, þrátt fyrir sína miklu stærð, heimsk og þess vegna auðveld hráð fyrir hinar stærri og sterkari kjötætur. Hinn voldugasti og grimmasti var vafa- laust hinn svokallaði „tyrannosaurus“. Ekki er talið víst að hann hafi verið í vesturfylkj- unum, en bein hans hafa fundizt í Montana. Áftur á rnóti vita menn að svipuð skepna en dálítið minni var til í Alberta. Hið fyrr- talda dýr var 50 feta langt, en hið síðara 40 feta. Hvorirtveggju gengu uppréttir á tveim fót- i:m; höfuð þeirra voru fjögurra feta löng. Þeir höfðu 50 tennur, langar og beittar eins og rýtingsblöð og hefðu vafalaust getað klippt mann í tvo hluti í einu taki, ef hann hefði verið til. Þessar risavöxnu kjötætur hafa hlotið að gjöra tilveru hinna, sem lifðu á jarðar- gróðri, fremur óþægilega, enda sýndu beina- grindur þeirra, sem til eru á söfnum í To- rontó, að stórfelld átök hafa átt sér stað, því að fótleggir og önnur bein hafa brotnað í bióðugum átökum, en bæklað aftur eftir viðureign þessara tveggja tonna þungu dýra fyrir 100 milljónum ára. Slíkum fundi mætti helzt líkja við árekstur tveggja járn- brautarlesta á fullri ferð. Þegar tímabil hinna milclu meginlands- dýra byrjaði að renna út, urðu stór neðan- jarðar átök, er hristu landið að grunni. í undanförnum jarðskjálftum lyftist landið nægilega til þess að sjórinn flæddi út, en í þetta sinn hélt lyftingin áfram frá vestri, urn milljónir ára eftir útflæði sjávar. Landið var nú styrkt með botnhellu 2—3 mílur á þykkt, er safnazt hafði saman á und- cuiförnum inn- og útflæðum, en hellan und- ir British Columbia var þynnri og veiga- rninni, vegna þess að sá partur landsins hafði verið skemmri tíma sævi hulinn. Nú þegar hin mikla umbrota lyfting hófst, varð eitthvað undan að láta og það varð þar, sem viðnámsstyrkurinn var minnstur.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.