Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Síða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Síða 24
62 SKÖPUNÁRSAGA SLÉTTUFYLKJANNA í CANADA N. Kv. Botnhellan sprakk, hraunjakarnir byltust um og beygluðust og heilir flákar risu upp á rönd í hraungígunum. I þessum átökum byrjaði sköpunarsaga Klettafjallanna. Þessi breyting var svo hægfara, að þess varð naumast vart á heilli mannsævi, en á þeim tíma voru ofsalegir jarðskjálftar mjög tíðir. Ef hinir miklu dinosaurar hefðu kunnað að hræðast, mundu þeir hafa orðið skelkað- ir þegar jörðin gekk í bylgjum undir fótum þeirra og ekki að ástæðulausu, því að ein- mitt þetta tímabil var forleikur að þeirra endalokum, eftir 100 milljón ára tilveru þeirra á þessari jörð, en frá þessum tíma liðu 99 milljónir ára, þar til maðurinn kom fram á sjónarsviðið. Talið er að fleiri hundruð dinosaura teg- undir hafi verið til, en ástæðan fyrir því að þeir dóu út svo skyndilega er ekki fundin, það er ógleyst gáta, en ýmsar getgátur eru í þessa átt og ein er sú, að með sköpun Kletta- fjallanna hafi lokazt fyrir hina röku og hlýju vinda frá Kyrrahafinu og landið þess vegna orðið þurrara og kaldara; dýrin hafi þá ekki haft nægan viðnámsþrótt gegn veð- urbreytingunni, eða ef til vill verið of lík- amsþung til þess að lifa eingöngu á þurru landi. Þegar árstíðir skiptust í sumar og vetur í staðinn fyrir eilíft sumar árið urn kring, eins og þau höfðu vanizt og alizt upp við, þurftu þau vitanlega að hafa hæfileika og viðnámsþrótt til að mæta hinum nýju lífsskilyrðum. Allar skepnur venjast á að leita skýlis fyrir átökum náttúrunnar, en vegna líkams- stærðar var þeim sú leið lokuð, engir skjól- staðir hæfilegir fyrir þau. En hver sem or- sökin var til gjöreyðingar þeirra, þá eru miklar líkur fyrir því, að hin mikla lík- amsþyngd þeirra hafi verið ein með fleir- um. En sú staðreynd, að náttúran hefir aldrei síðan framleitt svo stór dýr, er í aug- um vísindamanna sönnun fyrir því, að þau voru óhæf til að lifa við svona breytileg náttúruskilyrði. Síðasti dvalarstaður þeirra var Alberta. Nú kom lítið dýr til sögunnar, fyrsta spen- dýrið — broddgölturinn; hann var með heitu blóði og betur byggður til að mæta hin- um kaldari náttúruskilyrðum. Hann fæddi unga í stað þess að verpa eggjurn eins og dinosaurinn. Tímabil spendýranna var komið og leik- sviðið fyrir tilkomu mannsins var skapað. Norður-Ameríka var laus við sitt síðasta innsævi, en þetta gjörðist fyrir 50 milljón- um ára. Eins og áður er sagt, héldu Klettafjöllin hinu heita og raka lofti frá sléttufylkjun- um. Hin miklu burknatré, sem uxu árið um kring áður, féllu í vetrarkuldanum og nýj- ar tegundir betur fallnar til hinna breyttu náttúruskilyrða komu í þeirra stað. Hinn nýi trjágróður felldi lauf sín á vetrum og blómplöntur framleiddu fræ, sem varðveittu líf þeirra yfir hina köldu árs- tíð. Enn sem komið var uxu aðeins frum- stæðar. grastegundir. Um langa hríð, eftir myndun hinna fyrstu Klettafjalla, var Canada þakið skógi er samanstóð af hirki, beykitrjám, hlyn og eik, lík þeirri er þekkist nú í dag. Enn voru að verki hinir þolinmóðu og óþreytandi kraftar regns, strauma, frosta og jökla, við sögun, svörfun og niðurrif Klettafjallanna, þar til eftir voru aðeins lágir hálsar og hæðir. Sú breyting var al- gjör fyrir 25 milljónum ára, af því leiddi, að nú gat Kyrrahafið enn á ný borið yl og raka inn yfir landið. Heimskautsveturnir hopuðu undan til norðurs.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.