Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Page 39

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Page 39
N. Kv. DALURINN OG ÞORPIÐ 77 rétt átt. Og þar sá hann ljós, það var engin missýning. Hann sá stórt ljós í glugga, klifr- aði yfir gaddavír og reif buxurnar sínar. Hann gekk yfir flekk á túninu, heyið var stórgert og skrjáfaði í því. Og þar var hann kominn heilu og höldnu heim á hlað. Hund- arnir geltu óðslega á hlaðinu og létu ófrið- lega við aðkomurakkann. Hann skreið ýlfr- andi að fótum vinar síns. Drengurinn barði þrjú högg. Það leið góð stund. Þá heyrðist íótatak í göngunum, hurðin var opnuð, og fram á hlaðið kom hár maður. Hann hast- aði á hundana og spurði hásum rómi: Hver er þar? Drengurinn sagði til sín. Hvað er þér á höndum? spurði maður- inn. Er ekki pabbi minn hér? spurði drengur- inn án þess að svara. Jú. Mig langar til að finna pabba. Er eitthvað að hjá ykkur? Nei. Þeir gengu í bæinn, og brátt vissu allir, hvernig stóð á ferðum drengsins. Hann var ekki sneyptur, en konan gaf honum að borða, þvoði honum um hendur og andlit og talaði vingjarnlega við hann. Síðan hátt- aði hann hjá föður sínum upp við þil. Kon- an ein á fótum. Hún var að gera að plögg- um við.glætuna frá dálitlu ljósi fram við eldstóna. Drengurinn hlustaði á áminning- ar föðurins og horfði í Ijósið. Skömmu síð- ar sofnaði hann. Þegar hann vaknaði næsta morgun, var hann einn í rúminu. Andspænis honum sat gömul kona og þæfði háleista í lófa sínum. Litla telpan, Björk Ingólfsdóttir, stóð aft- an við rúmgaflinn og tuggði strá. Hún horfði eitthvað svo skrítilega á hann, eins og henni kæmi á óvart að sjá hann þarna. Hann fékk sætar kleinur og mjólk og át með beztu lyst. Gamla konan fékk honum skó með illeppum innan í. — Þú varst held- ur illa gengur í gærkvöldi, sýndist mér, sagði hún. Eg gerði þessar blöðrur, en ég hýst ekki við, að þær endist daginn, hvað þá lengur. Þakka þér fyrir, sagði hann lágum rómi. Hér bjó gott fólk. Hann klæddist og gekk út. Björk stóð við snúruna, amma hennar var að hengja út þvott. Hún leit á drenginn og sagði: Farið þið að leika ykkur. Þau stóðu dálítið feimin og horfðu hvort á annað. Inni sýndust augu hennar vera dökk, en hér úti í birtunni eru þau ljós, of- urlítið grænleit. Svipurinn lýsti viðkvæmni. Hvar er pabbi? spurði drengurinn. Hann er úti á engjum að slá, svaraði hún fullorðinslega og braut upp á svuntuna sína. Hún hafði smáa hönd, bjartan úlnlið, og svo var hún svo mjó. Hún sagði: Við skulum koma upp fyrir tún. Þar eru ber. Þau gengu upp túnið, komu í hrísmó og fundu ber. Þau tíndu góða stund þegjandi, þá sagði drengurinn: Heldurðu, að það séu til draugar? Hún leit upp, svolítið hrædd, sínum græn- leitu augum undan gullnum augnahárunum. Sólin skein beint framan í hana. Æi, sagði hún, við getum talað um eitthvað annað. Það vildi hann ekki. Hún kunni að lesa, en hann vissi líka ýmislegt, sem hún vissi ekki. Hann hafði sofið í stórri baðstofu, þar sem allt fylltist af kynjaverum strax og fór að rökkva. Á Mörfelli höfðu verið lesnar magnaðar draugasögur. r Eg vil ekki heyra þetta, sagði telpan. Það er líka hægt að læra að galdra, ef

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.