Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Síða 50

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Síða 50
88 DALURINN OG ÞORPIÐ N. Kv. an daginn í burtu. Jarmur lambanna var sár og gekk börnunum að hjarta, en brátt stilltist harmur þeirra. Þau gleymdu. Þau voru rekin á fjöllin, lítil og snauð og hás af jarmi. Þau héldu bópinn. Fætur þeirra voru grannir, en vegurinn langur og sums staðar brattur. Sum vildu heldur ganga utan við götuna, þar sem mýkra var undir fæti. I dalverpi til heiða, var skilið við þau, þau voru uppgefin, og lögðust þegar til hvíldar. Það var logn, gullrauður bjarmi yfir hvítum tindum lengra burtu, blámóða yfir dalverpinu, — kyrrð. Fossinn söng, lækurinn rann fram hjá.- Þeir feðgar sneru aftur til byggða. Björn litli hafði aldrei fyrr komið á þessar slóðir og honum fannst mikið til um. Hann var sí- spyrjandi, en fékk ekki alltaf svör, sem hann gerði sig ánægðan með. Þeir komu ekki heim fyrr en með morg- unsárinu. Varpinn var votur af dögg, sól í miðri hlíð. Spóinn vall í holtinu norðan við túnið, helsingjamóðir í mýrinni. Drengur- inn var svangur og át hafragraut og sauða- mjólk með heztu lyst. Faðir hans settist þungt á rúmstokkinn, áður en hann tók til snæðings. Hann var þreyttur. Drengurinn leit á hann og hugsaði: Skyldi hann ekki lifna við, ef hann fengi kaffi? Sjálfur var drengurinn vakandi yfir því nýja, er hann hafði séð. Hann þurfti ekki morgunkaffi. Þetta sumar sat hann hjá ánum. Nú gat hann dvalið í fjallinu eftir vild. Eftir að ærnar fóru að spekjast, gat hann legið tím- unum saman í grasinu og horft á skýin, á sólskin í grænu laufi og hlustað á söng. Flugurnar suðuðu og köngurlærnar skriðu um. Fiðrildi, gullsmiðir, járnsmiðir, urðu vinir hans. Snigillinn fetaði sig hægt áfram með kufung sinn á bakinu, grár og slím- kenndur og hálf-ógeðslegur. Drengnum leiddist aldrei hjásetan, ekki þó rigndi, ekki þó kæmi norðanþoka og vefðist urn fjöllin. Þá sýndust hara gilin dýpri og vatnið á hell- isgólfinu svartara, steinninn varð votur og blár, blómið fékk að drekka. Drengurinn sat í hellisskúta, þurr og ekki kaldur og þeg- ar rigndi fannst honum sitt eigið blóð streyma. Hann og náttúran voru eitt. Það var tilvinnandi að eltast við ærnar inn með á eða hátt upp í fjall og vera svo frjáls að því að leika sér meðal blóma og skorkvikinda. Drengurinn liafði vaxið, peysuermarnar hans voru alltof stuttar. Höfuðlagið var fal- legt og oft lék ljós lokkur yfir öðru auganu, hann strauk hann hurt með hendinni og djúpar hrukkur komu í ljós milli augnanna, þessi lokkur var sí og æ til óþægðar. Hárið óx ofan á hálsinn að aftan, drengurinn hafði ekki verið klipptur svo lengi. Finna hafði öðru að sinna. Svo kom haust. Sumarið hafði liðið áður en drengurinn vissi, — sólskinssumar án nokkurra mikil- vægra atburða. Það töldust ekki tíðindi, þó að konan frá A kæmi á sunnudegi í grárri sparikápu með sjalklút um höfuðið. Hún var að efna gam- alt loforð. Við hlið hennar gekk bjarthærð telpa, Björk Ingólfsdóttir, og hafði einnig vaxið frá því árið áður. (Framhald.) NÝJAR KVÖLDVÖKUR Utgefandi: Kvöldvökuútgáfan, Akureyri. Ritstjórar: Jónas Rajnar, Gísli Jónsson. Framkvæmda- stjóri: Kristján Jónsson. Prentsmiðja Björns Jónssonar,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.