Tjaldbúðin - 01.01.1898, Qupperneq 33
—8t—
liggja tröppur (og dyr) upp á pallinn frá báðum
hliðum. Að framan er pallurinn hálfhring-mynd-
aður, og umhverfis hann liggur annar lægri pallur.
Grindur eru í kringum háða þessa palla, og við
lægri pallinn krjúpa altarisgestirnir, þegar sakra-
mentinu er útdeilt. Bekkjunum í Tjaldbáðinni er
skipað í hálfhringi kringum pall þennan, og tveir
breiðir gangar liggja frá dyrunum eptir henni allri.
Undir Tjaldbúðinni er kjallari, og er í honum stór
kjallaraofn (furnace). Frá ofninum liggja tvær
stórar hitapípur upp í gangana. En þrjár kalda-
loptspípur leiða kalt loít, tvær úr Tjaldbúðinni
sjálfri, og ein að utan, inn í ofninn. I kjallaranum
er auk þess allstórt, afþiljað herbergi fyrir smáfundi
(fundaherbergi Tjaldbúðarinnar). í því er annar
minni kjallaraofn. Hitaplpa frá honum hitar upp
pall þann, er áður er nefndu''. Stóri kjallaraofn-
inn með útbúnaði sínum kostaði nálega $200.
* Aðalkosturinn við byggingarlag Tjaldbúðar-
innar er það, að hljóðið getur notið sín svo vel I
henni, hvort sem um tölur eða söng er að ræða.
Auk þess situr söfnuðurinn allur í hálfhringum
c kringum söng- og ræðupallinn ; allir geta verið
tiltölulega nálægt þeim, sem talar eða syngur.
Þetta byggingarlag ryður sjer ávallt meir og meir
til rúms, eptir því sem þekking manna á söng og
ræðuhaldi eyksf.
Tjaldbúðin er öll af timbri gjör. Lopt hennar
°g veggir að innan eru klæddir drilhvítri stein-
límshúð.