Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 61

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 61
Nordmenn lengja skemmtiskip íslendingar þekkja það, að það getur verið hagkvæmt að lengja skip, þótt dæmi séu um að þau hafi þurft að stytta. Minna mun þó um það að farþegaskip séu lengd sérstaklega. Þó virðist þetta vera að komast í tísku núna, því eftirspurn eftir skemmtiskipum virðist aukast meira en fram- boðið. Hjá A.G. WESER í Bremerhaven er nú verið að lengja norska far- þegaskipið ROYAL VIKING SEA, sem er í eigu konunglegu Víkinga- línunnar, en systurskip þess, ROYAL VIKING SKY og ROYAL VIKINGSTAR, höfðu bæði verið lengd áður, með góðum árangri. Talið er að kostnaðurinn við að lengja þessi þrjú skip, hafi numið um 100 milljónum dollara. Lengingin er einföld. Bætt er 93 feta, raðsmíðaðri einingu inn í skipið um miðjuna, eða framan við vélarrúmiðl og eftir ienginguna eru skipin um það bil 220 metra löng. (Venjulegt ísl. kaupfar er um 80 metra langt). Farþegarými eykst úr 500 í 700. Þó hefur margt annað verið gert, en að fjölga farþegaklefum. Aukið skemmtiþilfar hefur bæst við, ný sundlaug, til viðbótar þeirri, sem fyrir var, og 16 svítur með svölum. 63 tveggja manna klefar eru í viðbótarhlutanum, er hafi útiglugga. Þá hafa mót- tökusalir og þjónustumiðstöðvar verið fullkomnaðar. Eru þessi skip, miðað við stærð, talin búa betur að farþegum en önnur. 350 manna áhöfn er á hverju skipi. Ef myndirnar eru skoðaðar vel, má gjörla sjá viðbótina og það munar um minna.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.