Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Blaðsíða 55
Lagt af stað
frá New York
Ekki fór miklum sögum af veru
skipsins í New York, þótt öldur
tilfinninga færu um brjóstið á
hinum unga Shotton. Þó gerðist
það, að meðan skipið hafði þar
viðdvöl, veiktist II. stýrimaður
TRAFALGAR hastarlega, en sem
kunnugt er, þá sjá örlaganornirn-
ar, að því er virðist, sumum
mönnum fyrir atvikum, til að
hliðra þeim hjá reynslu.
II. stýrimaður var fluttur í land
og annar maður var ráðinn í hans
stað; sá eini sem völ var á, því um
þetta leyti var svo komið, að jafn-
vel prúðustu seglskip var örðugt
að manna. Og síðan var látið úr
höfn.
Nýi stýrimaðurinn reyndist illa,
og í raun og veru var hann alversta
manngerð, sem unnt er að fá á
skip. Hreinasti níðingur, sem naut
þess greinilega að kvelja og leggja
hendur á undirmenn sína. Og á
leiðinni lá við að hann yrði einum
hásetanum að bana.
Það kann á vorum dögum að
þykja undarlegt, að stýrimaðurinn
gæti hegðað sér þannig. En þetta
voru aðrir tímar. Dagar harðræðis
og hins stranga aga.
Þó gekk stýrimaður þarna of
langt og skipshöfnin gerði honum
það ljóst, að fyrr myndu þeir
fleygja honum fyrir borð, en una
skipsstjórnaraðferðum hans. Og
svo fór að lokum, áður en skipið
náði til Jövu, að II. stýrimaður
harðneitaði að fara upp á þilfar, af
ótta við að honum yrði fleygt fyrir
borð. Þar fór hann síðan í land og
lét ekki sjá sig framar.
Nýr stýrimaður var ráðinn í
hans stað, Kirkwood að nafni og
ró færðist yfir hið daglega líf um
borð í TRAFALGAR.
Hitasótt um borð
En viðdvölin á Jövu átti eftir að
reynast mönnum eftirminnileg.
Skyndilega gaus upp einhver pest
Lloyd’s heiðursmerkið eftirsofta, sem
William Shotton var sæmdur 7. febrúar
1894 og þykir í dag ein mesta viðurkenning
sem unnt er að veita sjómanni.
um borð í skipinu og margir fengu
háan hita. Var þá mönnum bann-
að að fara í land, en það varð
auðvitað tilefni illdeilna um borð
og olli leiðindum.
Þrír skipverjar struku þá af
skipinu. -i' t .
Skipstjóri á TRAFALGAR tók
einnig sóttina, og lá fársjúkur og
sveittur í klefa sínum.
Hann var af gamla skólanum,
og hann aftók með öllu að fá lækni
frá landi sér til hjálpar.
Skipstjórinn átti litla svarta bók,
sem í voru haldgóð læknisráð við
öllum þeim sjúkdómum, er
mannkynið hrjáði. Hann hafði
notað þessa lækningabók lengi og
ekki efaðist hann um gagnsemi
hennar, né vísindi. Skipstjóri las úr
bókinni sjúkdómseinkennin og
fann síðan „viðeigandi“ meðöl í
lyfjakassa skipsins. Orð skipstjór-
ans voru lög um borð í TRA-
FALGAR, sem geta má nærri, en
þegar fyrsti stýrimaður kom að
skipstjóra við vinnu í hitasvækj-
unni, og þá með óráði, ákvað hann
loks að hafa fyrirmæli hans að
engu og hann lét róa sér til lands
eftir lækni. Og það stóð á endum,
að þegar stýrimaðurinn kom um
borð með lækninn, var skipstjór-
inn látinn í klefa sínum.
Lá nú næst fyrir að finna nýjan
skipstjóra á Java, og það varð úr
að skipstjóri að nafni Richard var
ráðinn. Hann var góðmenni, og
hann gaf skipshöfninni land-
gönguleyfi á ný, sem hann hefði
nú betur látið ógert.
Þeir höfðu auðvitað flestir
tekið veikina og enduðu landvist-
ina á sjúkrahúsi, þar á meðal Bill
Shutton. En gæfan virtist vera með
þeim, því einn daginn höfðu þeir
náð heilsu og 29. október árið 1893
lagði TRAFALGAR úr höfn á
Jövu og sveif þöndum seglum í
áttina til Melborne í Ástralíu, sem
var næsti viðkomustaður skipsins.
Þó allt horfði vel í fyrstu og svo
virtist, sem skipshöfnin hefði náð
bata á Jövu, reyndist það á hinn
bóginn á misskilningi byggt. Þeir
voru enn sjúkir og brátt stakk
hitasóttin sér niður á nýjan leik og
nú við allt aðrar og verri aðstæður.
Meðan skipið þokaðist gegnum
hitamollu og raka, sem þarna er á
þessum árstíma, byrjuðu veikind-
in að herja, og byrinn tók af.
Richard skipstjóri tók það til
bragðs að gefa skipshöfn sinni
kínin, sem er meðal við malaríu.
Sumir, harðsoðnir, neituðu þó að
taka meðöl með öllu, en tíu dög-
um síðar lést fyrsti maðurinn um
borð og var líkinu varpað fyrir
borð með viðhöfn, þótt ekki gætu
allir verið við þessa dapurlegu út-
för, því fjöldi skipverja lá með
óráði í koju.
Kíninið reyndist ekki vinna bug
á þessari sótt og þar að kom, að
veikin breiddist út um allt skipið.
Skipstjórinn veiktist og stýrimað-
urinn tók við starfi hans. Og brátt
lagðist Kirkwood stýrimaður,
timburmaðurinn og margir aðrir,
er máli skiptu fyrir stjórn skipsins.
Og að lokum fór það svo, að
Shotton var einn uppistandandi af
yfirmönnum skipsins, og hafði
hann þó tekið veikina og verið
lagður á spítala.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 55