Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Blaðsíða 57

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Blaðsíða 57
Hann fór þó ekki varhluta af veikinni um borð, en hann reyndi að harka af sér og standa á löpp- unum, þótt sjúkur væri. Hefur líklega æska hans og hreysti, reynst honum betur en annað. Hann tók nú við skipstjórninni, — ásamt dauðanum, væri víst réttara að segja. Næst lést timburmaðurinn, eða 15. nóvember. Skipstjórinn skildi svo við þennan heim, fáeinum klukkustundum síðar, en á meðan börðust Kirkwood stýrimaður og margir aðrir við dauðann. Ekki bætti það úr skák, að skip- verjar fylltust nú skelfingu, og töluðu um að bölvun fylgdi þessu skipi. Þeir neituðu að hlýðnast skipunum og kröfðust þess að siglt væri til næstu hafnar, svo þeir gætu yfirgefið þessa fljótandi lík- kistu bölvunarinnar. Bill Shotton var því töluverður vandi á höndum. Hann stýrði nú stóru skipi, var ábyrgur fyrir stjórn þess, þótt hann væri aðeins nýlega orðinn 18 ára. Þar ofan í kaupin var hann veikur og mátti hafa sig allan við að halda hugsun sinni skýrri. Honum var það ljóst, að nú reið á að taka rétta ákvörðun. Og það var ekkert hik í rödd hans, þegar hann tilkynnti skipshöfninni, með þrumuraust: — Þetta skip er á leiðinni til Melbourne, og þangað sigli ég því, án viðkomu í öðrum höfnum! Það var dauðaþögn og hann heyrði orð sín bergmála um skip- ið, sjálfum honum til nokkurrar undrunar. Og honum varð það einnig ljóst, að hann mátti hvergi kvika frá settu marki, ef hann átti að ná tökum á þessari veiku og ringluðu skipshöfn. Það er ekki auðvelt að vita hvað í rauninni gerðist um borð í TRAFALGAR á þessari stundu, það er að segja innra með mönnum. En einhverra hluta vegna kusu mennirnir að hlýða hinum unga skipstjóra, sem þrátt fyrir æsku sína, var auðvitað eini maðurinn, sem kunni siglinga- fræði. Þó runnu á þá tvær grímur, þegar Kirkwood andaðist nokkr- um dögum síðar, og þá seinasti réttindamaðurinn um borð. Og til ólgu kom nú í fyrsta sinn, síðan Shotton tók við stjórninni. Um tíma ríkti að heita má algjör ringulreið um borð. Skipshöfnin fór ekki að fyrirmælum. Þeir hættu að halda við búnaði skipsins og brutust inn í forðageymsluna. Og þeir hættu að þrífa skip og vistarverur. Þeir gengu meira að segja svo langt, að þeir flýttu klukkunni, til þess að stytta vaktir sínar, en varðstaðan var víst það eina, sem aldrei fór verulega úr skorðum, ef þannig má orða það. En Shotton var ekki á því að láta menn buga sig eða til þess búinn að taka létt á yfirsjónum manna sinna. Með aðstoð brytans og seglameistarans, sem voru honum hliðhollir, tók hann saman lista yfir þá er stolið höfðu mat, og hann tilkynnti að þennan lista myndi hann afhenda lögregluyfir- völdum Ástralíu, þegar skipið kæmi til hafnar. Hann tók sjóúrið, sem skipverjar höfðu verið að fikta við og kom því fyrir í klefa I. stýrimanns og þar hafði hann log- andi kerti, svo unnt væri að lesa á það. Þar fékk það að vera í friði, enda spannst fljótlega sú saga um skipið, að stýrimaðurinn hefði gengið aftur, og hefði sést sitjandi við skrifborð sitt. Skipverjar gátu séð hvað tím- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.