Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 66
Skipasmíðar innanhúss
Enskar skipasm íðastödvar íjárfesta i' tækjabúnadi, til að auka samkeppnismöguleikana
Skipamiðlarar í London
greindu frá því nýverið í skýrslu
um kaupskipaútgerð og skipasölu
almennt, að þeim skipum fjölgaði
stöðugt, sem lægju verkefnalaus.
Að sögn skipaeigenda eru þau
farmgjöld, sem greidd eru það lág,
að þau hrökkva engan veginn fyrir
útgerðarkostnaði. Verð á not-
uðum skipum er einnig of lágt um
þessar mundir, til þess að menn
geti selt og losað sig þannig úr
vandanum, jafnvel þótt kaupend-
ur fengjust. Þó gera menn ráð fyrir
einhverjum bata, þar sem vextir
hafa verið lækkaðir, en vaxta-
byrðin hefur hvílt þungt á útgerð-
inni.
Fjárfesting í
skipasmíðum
Það skýtur því skökku við, þeg-
ar breski skipasmíðaiðnaðurinn er
að fjárfesta í skipaiðnaðinum og
mun hafa varið um 30 milljónum
punda á seinasta ári í að auka
hagræðingu og framleiðni. Þá
mun fé þetta einnig bæta bresk-
smíðuð skip, en útgerðir gjöra sí-
auknar kröfur um gæði, endingu
og hagkvæmni.
Gott dæmi um þetta er ný
skipasmíðaskemma, sem reist
hefur verið í Aberdeen á Skotlandi
og vígð var 10. september árið
1982. Kostaði skemman tvær
milljónir sterlingspunda, en eig-
endur eru Aberdeen Shipyard of
Hall Russel Ltd.
Stöðin var formlega opnuð af
formanni sambands skipasmíða-
stöðva í Bretlandi, Robert Atkins-
son.
Það má segja sem svo, að ef til
vill varði íslendinga lítið um
skipasmíðastöð, sem reist er úti í
heimi, jafnvel ekki í Aberdeen,
/
Hollenska „Dómkirkjan“.
66 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ