Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 68
DAS30ÁRA
BUUM OLDRUDUM
AHYGGJULAUST
ÆVœVÖLD
Happdrætti DAS varð 30 ára á
þessu ári, en í apríl árið 1954 voru
afgreidd, samtímis í báðum deild-
um Alþingis lög um happadrættið,
og sýnir það hug þingsins til mál-
efna Sjómannadagsins, og sjó-
manna. (Lög nr.71)
í tilefni afmælisins, var blaða-
mönnum boðið til fundar í Hrafn-
istu í Hafnarfirði, þar sem greint
var frá stofnun Happadrættis
DAS og onnfremur voru gestum
sýnd ný húsakynni, er tekin hafa
verið í notkun og ennfremur var
greint frá fyrirhuguðum fram-
kvæmdum.
Vinningaskráá
31. starfsári
Baldvin Jónsson, framkvæmda-
stjóri happdrættis DAS greindi
blaðamönnum frá tildrögum að
stofnun happdrættisins, en þá
voru fyrir tvö flokkahappadrætti í
landinu happadrætti Háskólans
og SÍBS. Var það Auðunn Her-
mannsson er fyrstur kom fram
með hugmyndina um Happa-
drætti Dvalarheimilis aldraðra
sjómanna.
Er lög höfðu verið sett, var strax
hafinn undirbúningur að starf-
semi happadrættis DAS, og með
tilliti til þess að fyrir voru tvö rót-
gróin flokkahappadrætti, varð að
velja nýja leið og frábrugðna vinn-
ingaskrá.
Þótt nokkurs efa gætti í byrjun,
að rúm væri fyrir happadrætti
DAS, reyndist sá kvíði ástæðu-
laus. Landsmenn tóku happa-
drættinu vel og hefur happadrætti
DAS notið gífurlegra vinsælda allt
frá stofnun. Það hefur greitt stórar
fjárfúlgur til vinninga og aflað
mikilla tekna, sem varið er til
líknarmála, eða til málefna aldr-
aðra.
Orðrétt sagði Baldvin Jónsson,
m.a. á þessa leið um ástæður fyrir
velgengni happadrættisins:
Strax var ákveðið að byggja
vinningaskrá ekki upp á sama
máta og hinna og hafa einnig
annað rekstursár, og þá miðað við
vertíðarlok og hafa happdrættis-
árið frá maí til apríl.
Og loks ekki síst það, að stjóm-
völd úthlutuðu happdrættinu 6 af
aðeins 9 innflutningsleyfum fyrir
bílum sem úthlutað var á því
skömmtunarári. En nýir bílar
voru þá ekki falir þótt fé væri
í boði. Og síðast en ekki síst hvað
við höfum verið lánsamir með
starfsfólk og umboðsmenn. Og
það svo að það er næsta einstakt.
Af okkur 13 sem vinnum á skrif-
stofu og í aðalumboði erum við 8
sem unnið höfum saman frá
fyrstu árum happdrættisins. Og
svipað er að segja um okkar um-
boðsmenn, sem eru um 100 tals-
ins, að um þriðjungur þeirra hefur
aðstoðað okkur frá fyrstu tíð og
annar þriðjungur þeirra í 10 til 20
ár.
Það er því margt sem stuðlað
hefur að þvi að Happdrætti DAS
hefur haslað sér völl með góðum
árangri.
Eins og flestum mun kunnugt,
þá hafa vinningar í happdrætti
okkar, sem eru að heildarverð-
mæti 894 milljónir króna samtals
þessi ár, verið ærið misjafnir, allt
frá góðhesti, hljóðfærum, traktor-
um, húsbúnaði og utanlandsferð-
um upp í bíla, íbúðir og einbýlis-
hús. Ég veit að margir minnast
þeirra ára er við í 12 ár samfleitt
sýndum á hverju vori ný vönduð
einbýlihús, fullbúin húsgögn-
um, og heimilistækjum, enda
streymdi fólk til að skoða þau og
voru oft fyrstu vor-bíltúramir.
Við létum telja aðsókn í einu
þeirra og þar varð tala gesta yfir
30 þúsund. En það var okkar
mikla verðbólga sem batt endi þar
á.
Núna, aftur á móti, að vori, tel
68 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ