Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Qupperneq 82
Sjóslys og
drukknanir
— írá 13. maí 1983 til maí 1984
1983
13. maí
lést Pétur Berthelsen, 41 árs,
Hringbraut 71, Keflavík, er vír
slóst í höfuð hans um borð í v.b.
um borð í v.b. Mumma GK frá
Sandgerði, þar sem hann var að
veiðum undan suðurströndinni.
Hann var tvíkvæntur. Lætur eftir
sig eiginkonu og þrjú börn.
20. júní
létust 3 skipverjar, er eldur kom
upp í rækjubátnum Gunnjóni GK
506,60 sjm. NV. af Horni.
Haukur Ólafsson, 25 ára, 1. vél-
stjóri, Akurgerði 4, Reykjavík.
Lætur eftir sig unnustu og eitt
barn.
Eiríkur Ingimundarson, 20 ára,
háseti, Tunguvegi 12, Njarðvík.
Einhleypur.
Ragnar Júlíus Hallmannsson, 17
ára, háseti, Ásgarði 5, Keflavík.
Einhleypur.
10 manna áhöfn var á bátnum og
björguðust 7 í gúmbát, síðan um
borð í v.b. Bjarna Ólafsson AK.
V.s. Þór kom einnig að og eftir 17
klst. baráttu við eldinn var bátur-
inn dreginn til Njarðvíkur. V.s.
Þór flutti líkin til ísafjarðar.
7. sept.
drukknuðu 2 bræður er v.b.
Bakkavík ÁR 100 fórst í innsigl-
ingunni við Eyrarbakka.
Þórður Markússon, 29 ára, Ás-
garði, Eyrarbakka. Ókvæntur,
barnlaus.
Sigfús Markússon, 25 ára, Ás-
garði Eyrarbakka. Ókvæntur,
barnlaus.
Bróðir þeirra bjargaðist. Bátnum
hvolfdi og komust þeir allir í
gúmmíbát, en báturinn rifnaði í
sjóganginum og köstuðust þeir
allir úr bátnum. Þeir gátu kastað
upp neyðarblysi upp áður en bát-
urinn rifnaði. Bj.sv. frá Eyrar-
bakka, og Stokkseyri komu fljót-
lega á vettvang. Lík Þórðar
fannst.
28. sept.
drukknaði Sigurgeir Jónsson, 26
ára, Melteigi 8, Keflavík í Njarð-
víkurhöfn. Hann var vélstjóri á
Hörpu RE 342, þar sem skipið lá í
Njarðvíkurhöfn, og sást þar síð-
ast um borð. Talið er að hann hafi
fallið á milli skips og bryggju.
ll.okt.
lést Garðar Ólafsson, háseti,
Yrsufelli 7, Reykjavík er hann féll
af vinnupalli við skipið Svaninn,
sem var í slipp í Bremerhaven í
Þýskalandi. Lætur eftir sig sam-
býliskonu, tvö fósturbörn og tvö
börn af fyrra hjónabandi.
28. okt.
drukknuðu 4 menn, er dæluskipið
Sandey II valt og hvolfdi á Við-
eyjarsundi.
Torfi Ólafs Sölvason, 50 ára,
stýrimaður, Sólheimum 18,
Reykjavfk. Lætur eftir sig eigin-
konu og tvær dætur. Líkið fannst
1. nóv.
Guðmundur Jónsson, 31 árs,
skipstjóri, Nesbala 80, Seltjarn-
arnesi. Lætur eftir sig eiginkonu
og þrjú börn. Líkið fannst 27. nóv.
við Engey.
Kjartan Erlendsson 35 ára,
Kjartansgötu 5, Reykjavík. Ein-
hleypur. Líkið fannst 2. nóv.
Emil Pálsson, 60 ára, Torfufelli
13, Reykjavík. Lætur eftir sig
82 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ