Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Qupperneq 83
eiginkonu og 6 börn. Lík hans
fannst.
2 björguðust.
31. okt.
drukknuðu 3 menn, er v.b. Haf-
örnin SH 122, 80 tonn fórst við
Bjarnareyjar, á Breiðafirði. 7—8
vindstig voru þá og foráttubrim.
Ingólfur Kristinsson, 20 ára,
Sundabakka 14, Stykkishólmi.
Lætur eftir sig unnustu, barnlaus.
Kristrún Óskarsdóttir, 36 ára,
Sundabakka 14, Stykkishólmi.
Lætur eftir sig eiginmann og tvö
börn.
Pétur Jack, 32ja ára, Lágholti 2,
Stykkishólmi. Lætur eftir sig
eiginkonu og tvö börn. Líkið
fannst 2. nóv. í Lónsey.
24. nóv.
lést Sigurður Hálfdánarson, 27
ára, skipverji, Norðfirði, er vír
slitnaði og slóst í hann um borð í
v.b. Berki NK 122 70 sjm. norður
af Siglunesi. Veður var slæmt
8—9 vindstig, mikill sjór. Lætur
eftir sig eiginkonu og tvö börn.
1984
22. jan.
drukknaði Hrafn Sveinbjörnsson,
32ja ára, Skeleyrarvegi 3B,
Hafnarfirði, háseti á v.b. Hilmi
SU 177, Fáskrúðsfirði, en gerður
út frá Reykjavík. Talið er víst að
Hrafn hafi fallið á milli skips og
^Og&í11 á Eskifirði. Líkið hefur
ekki fundist.
10. febr.
drukknuðu 4 menn af m.s. Fjall-
fossi, nýju skipi Eimskipafélags
íslands í höfninni á Grundar-
tanga. Líkin fundust á sjávarbotni
á milli skips og bryggju.
Þorbjörn Sigurðsson, 45 ára,
skipstjóri, Vesturbergi 159. Lætur
eftir sig eiginkonu.
Gylfi Guðnason, 39 ára, 1. stýri-
maður, Holtsbúð 21, Garðabæ.
Lætur eftir sig eiginkonu og 3
börn.
Kristinn Gunnlaugsson, 26 ára,
bátsmaður, Kríunesi 11, Garða-
bæ. Ókvæntur.
Daníel Stefánsson, 23 ára, Litla-
gerði, Grundartanga 54, Mos-
fellssveit. Ókvæntur.
ll.feb.
lést Ingi Viðar Ásgeirsson, 26 ára,
háseti, Raufarhöfn, er hann varð
fyrir toghlera og klemmdist undir
honum, um borð í Rauðanúpi, þar
sem hann var að veiðum á Papa-
grunni. Hafði skipið misst trollið
og átti að hífa varatrollhlera út í
rennu, en fékk þá skipið á sig
hnút. Haft var samband við lækni,
en siglt var með Inga Viðar til
Neskaupstaðar á sjúkrahúsið, en
þar lést hann.
6. mars
drukknaði Björn Jónsson, 32ja
ára, Flyðrugranda 2, Reykjavík,
háseti á v.b. Jóni Finnssyni RE
506, en hann hafði hlotið áverka á
læri og brotinn á báðum fótum, er
hann féll fyrir borð þar sem bát-
urinn var að veiðum 5 sjm. r/v SV
af Öndverðarnesi. Hann náðist
um borð, en var meðvitundarlaus.
Leitað var til SVFÍ og beðið um
þyrlu, en bj.sv. á Keflavíkurflug-
velli var beðin um þyrlu, sem fór
með tvo sjúkraliða, fóru þeir um
borð og héldu áfram lífgunartil-
raunum, sem skipverjar höfðu
áður hafið. Þyrlan flutti hann á
Borgarspítalann í Reykjavík, en
þá var hann látinn.
11. mars
drukknuðu 4 menn, er v.b. Hell-
isey VE 503, 75 lestir, fórst
skammt austan við Vestmanna-
eyjar. 5 manna áhöfn var á bátn-
um. Einn maður bjargaðist.
Hjörtur R. Jónsson, 25 ára, skip-
stjóri, Áshamri 63, Vestmanna-
eyjum. Lætur eftir sig unnustu og
barn frá fyrra hjónabandi.
Pétur Sigurðsson, 21 árs, 1. vél-
stjóri, Sæviðarsundi 9, Reykjavík.
Lætur eftir sig unnustu.
Engilbert Eiðsson, 2. vélstjóri, 19
ára, Faxastíg 4, Vestmannaeyj-
um. Lætur eftir sig eiginkonu.
Valur Smári Geirsson, 26 ára,
matsveinn, Herjólfsgötu 8, Vest-
mannaeyjum. Lætur eftir sig
eiginkonu og 2 börn.
Þeir höfðu fest trollið í hraun-
kambi. Er þeir reyndu að losa
trollið, hvolfdi bátnum skyndi-
lega, án þess þeir gætu sent
neyðarkall eða náð lífbátnum.
Brak úr bátnum fannst 3 sjm.
undan landi. Flakið fannst á 99 m
dýpi.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 83