Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Qupperneq 16
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ
14
nýtt hjúkrunarheimili hrafnista hafnarfirdi
Nýja hjúkunarheimilið. íbaksýn gnæfir eldri byggingin.
Einhver besta aðstaða
fyrir aldraða sem fyrir fínnst
„Nú - þegar bæði A og B álman hafa
risið - þori ég að segja að á heimilinu
sé að finna eina bestu aðstöðu fyrir
aldraða sem fyrir finnst, ekki aðeins
hér á landi, heldur einnig þótt víðar
væri leitað. Hér er satt að segja alla þá
þjónustu að finna sem eitt bæjarfélag
þarf á að halda: Þarna er hársnyrting
og fótsnyrting, barnaheimili, eldhús
og endurhæfing, læknisþjónusta,
verslun, kapella, föndur- og iðjuþjálf-
un og samkomusalir. Dagvistun handa
öldruðum er líka fyrir hendi.
Hjúkrunarheimilið var upphaflega
ætlað fyrir 86 manns og hannað sem
slíkt. Það er á þrem hæðum og eru þar
þrjár hjúkrunardeildir sem rúma 30
vistmenn hver. A hverri hæð er setu-
og borðstofa og er það breyting frá
Hrafnistu í Reykjavík þar sem aðeins
er einn borðsalur. Reynt er að koma
öllum sjúklingunum fram á matmáls-
tímum og verður það auðveldara með
slíkri deildaskiptingu.
Loks má geta þess að 30 manna
deild á Hrafnistu í Hafnarfirði er
helmingi stærri en á Hrafnistu í
Reykjavík, húsin hafa stækkað svo
mikið. Þetta má líka skýra þannig að
500 fermetrar samsvari 1000 fermetr-
um í Hafnarfirði. Má nærri geta hve
slíkt eykur á vellíðan vistmanna.
Hjúkrunarálman er um 6000 fermetrar
og um 22000 rúmmetrar. A og B álm-
urnar eru samtals um 12000 fermetrar
og um 45000 rúmmetrar, enda er
Hrafnista í Hafnarfirði með stærri
byggingum á höfuðborgarsvæðinu.
Minnast má á að þaki A álmunnar hef-
ur verið lyft og komið þar fyrir 12
íbúðum og hefur húsið enn stækkað
við það. Svona miklar byggingar eru
auðvitað margflóknar, bæði hvað við-
hald og rekstur snertir.“
Hjúkrunarheimili
verður að vera heimili
fólksins er þar dvelur
„Þá vil ég benda á að hjúkrunarheim-
ili verður að vera heimili fólksins sem
þar dvelur. Hönnun þess kann því að
vera erfið. Þarna er sjúku fólki ætlað
að búa og það þarf læknismeðhöndl-
un. Yfirleitt er þetta síðasti áningar-
staðurinn og skiptir miklu máli að yf-
irbragðið sé vistlegt og að fólki finnist
það ekki vera komið á spítala. Leitast
er við að fela eftir föngum skolher-
bergi, língeymslur og annað sem
verður að vera. Þótt ekki sé hægt að
láta þetta hverfa með öllu má eigi að
síður búa svo um að það sé huggulegt
og róandi að sjá.
Þá hefur mikið verið rætt um stærð
vistherbergja, en vistherbergi má ekki
vera of stórt og ekki heldur of lítið.
Það er að mikið atriði að fólk geti
alltaf tekið eitthvað með sér að heim-
an - kommóðu, stól, myndir og slíkt.
Þannig slítur það ekki alveg samband-
ið við það sem það hefur búið við í
gegnum áratugina. Hér þarf því að
finna rétta milliveginn.“
Hví ekki að nýta það
enn betur sem þarna er í boði?
„Nú er í undirbúningi að reist verði
nýtt þriggja hæða hjúkrunarheimili
með þremur deildum. Astæðan er hve
sú aðstaða sem fyrir hendi er þegar er
rekin á hagkvæman hátt og hve fjöl-
breytt hún er. Hví skyldi húsrými ekki
einmitt aukið á þessum stað, svo fólk
megi hafa not af öllu því sem þarna er
í boði?
Víst hefur verið rætt um hvort reisa
eigi minni heimili vítt og breitt á höf-
uðborgarsvæðinu. En það er alveg
ljóst að þar yrði ekki hægt að veita
nærri sambærilega þjónustu. Að auki
verður öll þjónusta ódýrari með því að
byggja við Hrafnistu í Hafnarfirði.
Það skiptir ekki litlu máli, þar sem
vitað er að þessi málaflokkur verður
mjög þungur fjárhagslega í framtíð-
inni.
Til þess að gera þennan nýja áfanga
sem ódýrastan í byggingu er ætlunin
að byggja aðeins þrjár hjúkrunardeild-
ir, eins og ég sagði, með 30 manns á
hverri deild. Þar þyrfti enga svokall-
aða stoðstarfsemi eða rými fyrir al-
menna þjónustu - hún er öll fyrir
hendi í gamla húsinu, þótt víst gæti
þurft að koma til einhverra breytinga.
Þarna er því um hús að ræða sem yrði
ódýrt bæði í byggingu og rekstri, en
kostnaður er áætlaður 500 milljónir.
Frumhugmyndir að byggingunni
eru tilbúnar, en þær voru gerðar 1992
og kynntar á fyrra ári. Lögð var inn
umsókn um rekstrarleyfi í janúar 1993
en dráttur hefur orðið á í bili að það
leyfi fáist. Húsinu verður svo fyrir
komið að það skyggi sem minnst á
útsýni. Þær byggingar sem þegar eru
komnar eru gífurlega stórar og verður
að leitast við að nýja húsið, sem er
4000 fermetrar, verði sem fyrirferðar-
minnst í landinu. I nýja húsinu sjálfu
hefur einnig verið lögð áhersla á gott
útsýni og á efstu hæð þess verður
fundarsalur eða kannske kapella.
Guðþjónustur Víðistaðasóknar voru
um skeið haldnar í matsalnum á
Hrafnistu áður en kirkjan var reist og
er því rík hefð fyrir guðsþjónustuhaldi
á heimilinu.“