Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Blaðsíða 103
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ
101
veggjalúsabitin sáust um allan líkama
minn og læknirinn sagði að ég væri
illa til reika. Svo spurði hann mig
hvernig ég hefði komið til Calcutta og
rétti ég honum þá sjóferðavottorð
mitt, en gat þess um leið að ég væri
peningalaus og gæti ekki borgað
læknishjálp. Hann mælti: „England
borgar fyrir þig hér.“
Síðan kallaði hann á Hindúa og
skipaði honum eitthvað, sem ég skildi
ekki. Gaf Hindúinn mér merki um að
koma með sér og læknirinn ætlaði að
fara, en þá bað ég hann að lofa mér að
kveðja vin minn sem biði úti og sótti
hann baróninn sjálfur. Ég bað hann að
skila til Price að ég væri lagstur á spít-
ala, sömuleiðis bað ég hann að vitja
um mig, heilsa frúnni o.s.frv. Síðan
kvaddi ég þennan góða félaga minn
sem ég ávallt nefndi baróninn að
gamni mínu, þótt hans rétta nafn væri
Hermann Bierfreund, eftir því sem
hann sjálfur sagði og ritað var á hið
lélega sjóferðavottorð hans. Við áttum
marga gleðistund saman meðan sól
var á lofti, en á nóttunni töluðum við
um raunir okkar uppi á þaki á gistihúsi
því sem er hið fátæklegasta og aum-
asta af öllum þeim gistihúsum sem ég
hefi kynnst og eru þau þó mörg.
Baróninn sá ég aldrei framar.
Hann kom að vitja um mig tveim
dögum síðar, en þá lá ég með óráði.
Seinna heyrði ég að Price hefði
skömmu síðar ,,schang-haiað“ hann á
enskt barkskip sem hét ,,Rockrane“,
og var ferðinni heitið til New York.“
að anddyri spítalans. Þar hittum við
Hindúa og gerðum boð að okkur lang-
aði til að tala við lækni.
Að vörmu spori kom ungur Hindúi
til okkar, kvaðst vera spítalalæknir, og
spurði hvert erindið væri. Ég sagði
honum frá lasleika mínum og bað
hann mig þegar að koma með sér inn í
herbergi, lét mig afklæða mig og
skoðaði mig allan. Moskítóstungur og
„Clipper“- skip. Þessi miklu skip voru frœgfyrir tíguleik og jafnframtfyrir hve hrað-
skreiðþau voru. Þetta er,,Eldingin “ smíðuð 1853. Stórmastrið var 50 metrar á hæð
og stórráin 29 metra löng. Þegar öll segl voru uppi voru þau 1000 fermetrar aðflatar-
máli. Sveinbjörn Egilsson var einn fárra Islendinga sem gerðist nákunnugur stóru
seglskipunum á gullöld þeirra.