Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 21

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 21
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19 miðað við kjör háseta áður en reglu- gerð útgerðarmanna var sett. Hins vegar telur hann að eina krafa háseta sem sé ný, sé krafan um kaupgreiðslu í peningum. Áður höfðu sjómenn ætíð fengið laun sín greidd með því að taka út vörur hjá kaupmönnum sem í flest- um tilfellum voru jafnframt vinnu- veitendur þeirra. í lok greinarinnar kemur í ljós að hásetar óttast ekki hugmynd Fjallkonunnar um að ráða megi háseta frá Færeyjum, þeir telja sig ekki geta unnið á þilskipunum samkvæmt reglum útgerðarmanna. Fleira hafa Reykjavíkurblöðin ekki að segja um stofnun stéttarsamtaka sjó- manna haustið 1894. Hugmynd tveggja nemenda Stýrimannaskólans Um upphaf og starf Bárufélagsins fyr- stu árin er aðeins hægt að styðjast við frásagnir sem færðar voru í letur löngu síðar. Pétur G. Guðmundsson rekur sögu félagsins í stórum dráttum í tíu ára starfssögu Sjómannafélags Reykjavíkur. Hann getur ekki um heimildir eða heimildarmenn og óvíst hvort elstu fundargerðirnar voru þá glataðar. Að líkindum byggir hann á frásögn Ottós N. Þorlákssonar, Geirs Sigurðssonar og fleiri stofnenda. Heimildir hans eru nokkuð ótraustar, þar sem 30 ár eru liðin frá því er at- burðirnir gerðust, og upplýsingamar Jón Jónsson, fyrsti formaður Bárunnar. Geir Sigurðsson, í fyrstu stjórn Bárunnar. hafðar eftir öðrum. Aðrir sem ritað hafa um Bárufélögin styðjast við frá- sögn Péturs. Auk þess hafa birst viðtöl við Ottó N. Þorláksson um Bárufélögin, en þau eru því miður höfð þegar hann er kominn á efri ár. Þó eykur það heim- ildagildi frásagna Ottós, hve vel hon- um entist skýr hugsun og minni, og ýmsar munnlegar upplýsingar hans á efri árum um Bárufélögin hafa komið vel heim við fundargerðir þess 1902- 1910, þótt langt væri liðið frá því hann hafði þær undir höndum. Við ofan- greindar heimildir verður að styðjast í eftirfarandi lýsingu, þar eð þær kom- ast næst atburðunum, þótt þær séu yngri heimildir en æskilegt væri. Tveir nemendur Stýrimannaskól- ans, þeir Ottó N. Þorláksson og Geir Sigurðsson, virðast fyrstir hafa hafist handa um stofnun Bárunnar í þeim tilgangi að mæta aðgerðum útgerðar- manna. Þeir leituðu liðsinnis Jóns gagnfræðings Jónssonar þar eð þeir áttu sjálfir erfitt með að hafa forystu á hendi vegna námsins. Þeir þrír hafa síðan athugað undir- tektir háseta í Reykjavík og boðað til fundar á veitingastaðnum Geysi (Skólavörðustíg 12) 14. nóvember kl. 8 e.h. Þar komu um 30 sjómenn. Þar voru félaginu sett lög og skipuð þriggja manna stjórn sem var þannig skipuð: Jón Jónsson formaður, Hafliði Tryggvi Gunnarsson, forystumaður út- gerðarmanna. Jónsson og Geir Sigurðsson. Pétur G. Guðmundsson lét í bók sinni prenta lög félagsins, en vafasamt er hvort það eru upphaflegu lögin. Þar segir um tilgang félagsins í 2. grein: „Aðal- stefna félagsins er að auka og við- halda velmegun og réttindum sjó- manna yfir höfuð.“ „Vei þeim fólum sem frelsi vort svíkja...“ í grein um Sjómannafélagið Báruna sem Ottó N. Þorláksson birti í Þjóðólfi tveimur árum eftir stofnun félagsins ritar hann um markmið þess og vitnar í ,,grundvallarsetningu“ félagsins: „Aðaltilgangur félagsins er: að bæta hagsmuni þilskipaháseta á Islandi, jafnframt því sem félagið lætur sér annt um velgengni allra sjómanna yfir höfuð.“ Utgerðarmenn eða kröfur gegn þeim eru „hvergi nefndar á nafn í lögum félagsins,“ segir Ottó og bendir orðalagið í 2. grein til þess að Pétur hafi haft yngri gerð laganna undir höndum. Þau félagssamtök sem forgöngumennirnir þekktu best til voru Góðtemplarareglan, sem þá var mjög útbreidd meðal alþýðu manna, og byggðu þeir á reynslu þaðan við félagsstörfin. Að fundi loknum gengu l'undarmenn fylktu liði niður Skóla- vörðustíg og sungu: „Vei þeim fólum sem frelsi vort svíkja...“.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.