Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 50

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 50
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 48 þau tæplega tíu á Neptúnusi. Núna geta menn sjálfir reiknað verðgildi sparnaðarins aftur og fram í tima eftir tilsögn frá Rósmundi Guðnasyni sem starfar hjá Hagstofu íslands. Skipstjóri varaður við í saltfisktúr á Goðanesinu NK-105 ár- ið 1951 vorum við á veiðum við vest- urströnd Grænlands, aðallega á Stóra- Hellefiske- og Lille-Hellefiskebanka. Veiðitúrinn var langt kominn. Fiski- ríið síðustu dagana var ákaflega lé- legt. Farið var að ganga á olíubirgðir og fannst mér það ekki gæfulegt fyrir útgerðina ef skipið yrði að fara inn til Godthap og kaupa þar rándýra olíu af Dönum. Eg fór því upp í brú í þeim erinda- gjörðum að vara skipstjóra við. Til- kynnti ég honum að olíubirgðir stæðu þannig að ef hann héldi heim á leið núna (þá) myndu olíubirgðirnar nægja til heimferðar. Hann sinnti þessu lítið. Aðgæsla vélstjórans varð til þess að olían nægði Daginn eftir var fiskirí afar lélegt og tilkynnti ég skipstjóra þá að olíubirgð- ir væru orðnar alveg í lágmarki til þess að ná heimsiglingunni. Þá var hætt veiðum og siglt suður með vest- urströnd Grænlands áleiðis heim. Þetta var upp úr hádegi þann dag. Nú, jæja, nóttina á eftir um kl. 04.00 um morguninn vakna ég við að skipið hreyfist ekki á öldum, það virðist komið á kyrran sjó. Fer ég fram úr koju minni og upp í brú og sé þá að siglt er inn langan fjörð. Ég sný mér að skipstjóranum og spyr: „Hvert ertu að sigla?“ „Ég er að sigla inn í Grönnedal og ætla að taka þar olíu.“ „Rándýra!“ segi ég, „af hverju“? „Guðmundur sagði mér að olían dygði ekki heim.“ (Guðmundur þessi var annar af kyndurunum hjá mér). „Er Guðmundur í. vélstjóri hjá þér,“ sagði ég þá. „Ég er búinn að tilkynna þér að olíubirgðirnar nægi til heimferðar.“ Við þessi orð mín var snarsnúið við 180 gráður og haldið út fjörðinn aftur, heim á leið, út allan þennan langa fjörð. Siglt var heimleiðis sem leið lá til Neskaupstaðar. Á leiðinni sagði ég: „Við getum þá tekið olíubirgðir í Vestmannaeyjum ef þarf. Olían er þar allavega ódýrari en hjá Dönum á Grænlandi." Á heimleiðinni gætti ég alls til hins ítrasta svo spara mætti olíuna, en aðal- vélin var 1000 ha. gufuvél. Gætti ég hitans á brennsluolíunni til þess að hún færi í brennsluspíssana á mínum óskahita, að loftventlar á vélarrúmi stæðu réttir til þess að ekki blési of köldu lofti niður í kyndirúmið, að að- alvélin fengi ekki of blautan damp, því annars yrði of mikið vatn sem þéttist. Eimsvalann kældi ég því í lág- marki. Allt hafði þetta þær góðu af- leiðingar að ketil-vatns-dælurnar dældu vatninu mjög heitu inn á ketil- inn aftur. Allar þessar aðgerðir spör- uðu mikla olíu. Siglt var hjá Vestmannaeyjum án þess að koma þyrfti þar við til að taka olíu - og til Neskaupstaðar náðum við. Á skrifstofu útgerðarinnar hitti ég skrifstofustjórann og hann spyr: „Hvenær tókuð þið olíu“? „Við tókum enga olíu,“ segir ég. „Það getur ekki verið,“ segir hann þá. „Jæja, þið fáið þá reikning fyrir þessari olíu,“ sagði ég. „Það getur ekki verið að þið hafið ekki tekið olíu á Grænlandi - túrinn er búinn að standa í 44 daga,“ sagði skrifstofustjóri. Þannig varð olíusparnaður í túrnum eins og best varð á kosið, en ég fékk engar þakkir fyrir það. Jósafat Hinriksson iönrekandi, vélstjóri ogfyrrum sjómaður. Starfsfólk Hrafnistuheimilanna sparar ekki krafta sína í þágu skjólstæðinga sinna í X uu a JBMbal i, J Þann 6. maí sl. héldu starfsmenn Hrafnistu í Hafnarfirði í 16. skipti vorfagnað með vistmönnum þar sem boðið var upp á fjölmörg skemmti- atriði. Hrafnistukórinn kom fram og hljómsveit lék fyrir dansi og milli atriða. Veitingar allar lagði starfs- fólkið til, heimabakaðar kökur og tert- ur. Hér má líta sex af starfskonum á heimilinu og eru þær talið frá vinstri: Hjördís Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Hjaltalín, Málfríður Þórhallsdóttir, Sonja Hulda Ólafsdóttir, Erla Guð- mundsdóttir og Margrét Halldórsdóttir. Sem sjá má eru þær klæddar þjóðbúningi í tilefni af lýðveldis- afmælisári.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.