Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Síða 17
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
17
’-v.uú''- ,'v ^
Mynd sem þessa gefst ekki oft fœri á að taka. Hér stendur Hermann Sigurðsson
stýrimaður, núflugmaður hjá Landhelgisgœslunni, á Geirfugladrangi vestan Eldeyjar.
Þar sem veður var óvenju gott og stórstraumsfjara gafstfœri á að mœla dranginn — en
slíkt er varla mögulegt nema einu sinni eða tvisvar á ári. Myndin er tekin árið 1979.
VEÐURS. EKKERT SAMBAND
VIÐ SKIPIÐ. GÚMBÁTUR FAR-
INN FRÁ SKIPINU. EKKI GETIÐ
UM HVORT MENN VÆRU í
HONUM. BÁTINN MUN SENNI-
LEGA REKA AÐ LANDI Á
SVÆÐINU FRÁ SKUTULSFIRÐI
AÐ SKÖTUFIRÐI."
„Ross Cleveland“ sekkur
„Kl. 01.12 tilkynnti ísafjörður ra-
díó að SVFÍ á ísafirði ætli að reyna
að ná sambandi við bæi á svæðinu
Skutulsfjörður-Skötufjörður og láta
vita um bátinn.
Kl. 01.35 tilkynnti „Kingston And-
alusite“ H-41 að togarinn „Ross
Cleveland" H-267 hafi sokkið kl.
23.40 GMT. á 66 gráðurn 08°5 N og
23 gráðum 03°0 V og mundi enginn
hafa komist af. Sagði hann að þeir
hefðu verið í nánd við togarann
þegar hann sökk og sást enginn mað-
ur yfirgefa skipið.
Úm kl. 02.00 þegar ljóst var að
ekkert var hægt að gera á strandstað
„Notts County“ GY-643 var lónað
vestur fyrir Bjarnarnúp til að svipast
um eftir „Heiðrúnu 11“ ÍS-12 og var
því haldið áfrarn til kl. 07.00 án
árangurs. Veður var þá farið að lag-
ast undir Grænuhlíð og vestur undan
Bjarnarnúp.
Kl. 05.50 tilkynnti ísafjörður radíó
að hann hefði heyrt neyðarkall á 2182
ko/s og mundi það vera frá „Notts
County“ GY-643.
Um kl. 08.00 var aftur komið á
strandstað, og var þá mun meiri
vindur undir Bjarnarnúpnum en
vestan til í Djúpinu, eða um 8 vind-
stig af NA.
Kl. 08.03 náðist slitrótt samband
við „Notts County“ GY-643 og til-
kynnti hann þá að mennirnir væru
enn um borð í togaranum, en líðan
þeirra væri mjög slæm.
Kl. 09.18 tilkynnti „Notts County“
GY-643 að botninn væri að brotna
undan skipinu og þeir væru að fara á
flot um borð. Send voru þá fyrirmæli
til skipshafnar togarans um að fara
ekki frá borði, heldur bíða þess að
veður batnaði, svo hægt væri að
bjarga þeim frá sjó.
Kl. 09.44 tilkynnti „Notts County“
GY-643 að hann heyrði í flautu varð-
skipsins og var það fyrsta vísbending-
in um að við værum á réttum stað, en
aldrei hafði sést til togarans nema í
ratsjá. Einnig var „Notts County“
GY-643 tilkynnt að allt yrði gert til
að hjálpa þeim, en ekki væri viðlit að
senda bát eins og væri vegna veðurs.
Kl. 10.00 tilkynnti „Notts County“
GY-643 að 18 menn væru á lífi, en 1
maður látinn og 4 menn væru með
kal.
Kl. 11.25 tilkynnti „Notts County'*
GY-643 að 5 menn væru með kal og 2
aðrir veikir. Þá var togaranum til-
kynnt að við mundum hefja björgun-
araðgerðir strax og mögulegt væri.
Um kl. 12.00 sást togarinn fyrst
með berum augum, en varðskipið
varþá0.2sml. frá togaranum. Veður
var NA-7-12 vindstig og snjókoma.
Það var fyrst um kl. 13.35 sem fært
þótti að hefja björgunaraðgerðir og
voru þær framkvæmdar eins og hér
greinir:
Varðskipið lónaði upp undir tog-
arann og þegar 0.1 sml. var milli skip-
anna fór gúnnníbátur með utan-
borðsmótor yfir í togarann og hafði
hann meðferðis 2 óútblásna 10
manna gúmmíbáta. I gúmmíbátnum
voru þeir Sigurjón Hannesson 1.
stýrimaður og Pálmi Hlöðversson 2.
stýrimaður og höfðu þeir báðir boð-
ist til að fara þessa ferð ineð sam-
þykki skipherra. Þeim gekk ferðin
vel yfir í togarann, nema hvað hægt
gekk vegna þess hve hvasst var.
Þegar þeir komu að síðu togarans
blésu þeir upp annan björgunarbát-
inn og notuðu einnig 10 manna
gúmmíbát sem var við síðu togarans.
Fór svo áhöfn togarans í þá. Þegar
bátarnir lögðu frá togaranum, lónaði
varðskipið 0.1 sml. frá togaranum og
komust bátarnir þar að síðu varð-
skipsins. Greiðlega gekk að ná
mönnunum úr björgunarbátunum og
var þessum björgunaraðgerðum lok-
ið um kl. 14.30. Var síðan haldið til
ísafjarðar og kontið þangað kl. 15.20
og skipbrotsmennirnir settir í land,
þar sem læknir tók við þeim.
Á ísafirði var loftnetsbúnaður
skipsins lagfærður eftir föngum og
legið þar um nóttina.
Hinn 6. febrúar kl. 09.00 var látið
úr höfn á ísafirði og haldið á
strandstað „Notts County" GY-643.
Tekið var lík skipverjans sem látist
liafði og það flutt til ísafjarðar þar
sem hafnsögubáturinn tók við því í