Gripla - 01.01.1990, Page 204
200
GRIPLA
level as well, especially since the poetic source provides a less tempt-
ing model for slavish imitation. If it ever does become fashionable to
study the rímur-derived sagas, the application of criteria such as those
used above should allow a meaningful comparison between individual
authors as well as between members of the genre.
ÁGRIP
Á 14. öld komst í tísku að snúa sögum frá fyrri öldum í bundið mál, hinar svo-
kölluðu rímur; en síðar breyttist tískan aftur og voru þá ritaðar frásagnir í
óbundnu máli eftir kveðskap fyrri tíma. Þessum „rímna-sögum“ frá síðari öld-
um hefur til þessa verið lítill gaumur gefinn, þótt slíkar endursagnir virðist
vera nógu margar til þess að tala megi um heila bókmenntagrein. Hér og hvar
í útgáfum eru lauslega nefndar ýmsar slíkar frásögur, svo sem Hrings saga ok
Tryggva, sem runnin er frá rímunum Geðraunum, endursögn Krossrímna í
Lbs. 714, 8vo og Hemings þáttux gerður eftir Hemings rímum Benedikts Sig-
urðssonar sem ortar voru 1729. Auk þess eru 22 slíkar endursagnir rímna tald-
ar og flokkaðar í ritgerðinni.
Til þessa hefur ekki verið gerð nein skrá um slíkar “rímna-sögur“, en þær
skipta líklega tugum. í JS 46, 8vo er t.a.m. sérstök gerð af Samsons sögufagra
sem að nokkru er runnin frá óprentuðum rímum eftir Guðmund Bergþórsson
ortum 1683. Rímurnar eru nokkuð langar, 16 alls, og hafa notið talsverðra vin-
sælda því að þær eru til í 8 handritum. Fyrri hluti sögunnar er gerður eftir 8
fyrstu rímunum með þeim hætti að mansöngvarnir eru teknir upp en sagan síð-
an sögð í lausu máli. En síðan er horfið frá rímunum, og er síðari hluti hinnar
nýju sögu nokkuð nákvæm uppskrift gömlu sögunnar (frá og með 11. kap.).
Stundum getur reynst torvelt að greina slíkar endursagnir rímna frá öðrum
sem gerðar voru eftir eldri frásögnum í lausu máli eða frá sögum þýddum úr
erlendum málum.
Ágætt dæmi um slíkt verk er Jónatas saga sem varðveitt er í einu pappírs-
handriti frá 18. öld, JS 408, 8vo. Skrifari er Sigurður Magnússon í Holtum í
Hornafirði, og er uppskriftin dagsett 15. febrúar 1772. Sagan er gerð eftir
Jónatas rímum sem eru þrjár að tölu og munu ortar á seinna hluta 16. aldar, en
heimild þeirra er aftur á móti svonefnt Jónatas œvintýri frá 15. öld.
Ljóst er að sagan getur ekki verið samin beint eftir ævintýrinu, því að með
þeim eru engar beinar líkingar í orðalagi. í sögunni eru ýmis frávik frá ævin-
týrinu, en þau má öll rekja til rímnanna. í ritgerðinni er sýnt hvernig höfundur
sögunnar snýr ljóðunum í óbundið mál. Hann fer að ýmsu leyti sjálfstætt með
heimild sína, fellir nokkuð úr en eykur öðru við, og þó fremur í lýsingum en í