Gripla - 01.01.1990, Page 305
SIGURD HJORT OG HANS TO B0RN I ISLANDSKE KILDER 301
Svipaðar frásagnir um Sigurð hjört og börn hans koma fram einum hundrað
árum seinna í svonefndum Ragnarssonaþætti í Hauksbók. Talið er að í báðum
þessum ritum sé farið eftir munnmælasögnum, en í þættinum er miklu fleira
sagt frá Sigurði en í Heimskringlu. í Egilssögu er einnig sagt að Guttormur
sonur Sigurðar hjartar væri móðurbróðir Haralds hárfagra, og þar eru nefnd
börn hans fjögur, tveir synir og tvær dætur. Eftir andlát Guttorms sendi kon-
ungur tvo trúnaðarmenn sína á skipi að sækja sonu hans til Víkurinnar og
flytja þá til Prándheims. Kveldúlfur og Skallagrímur voru þá búnir til íslands-
ferðar. Þeir urðu varir við ferð konungsskipsins og réðust á það ti! hefnda fyrir
Þórólf Kveldúlfsson sem konungur hafði tekið af lífi. í orrustunni fórust báðir
hinir ungu frændur Haralds konungs. í vísu sem tilfærð er í sögunni og eignuð
Skallagrími greinir frá þessum atburðum. Þar eru sveinarnir kallaðir „Ynglings
börn“, en það stríðir gegn því sem í sögutextanum segir, að Guttormur faðir
þeirra væri móðurbróðir Haralds hárfagra og því ekki af ætt Ynglinga. (Sumir
fræðimenn telja raunar að vísan muni ekki með réttu eignuð Skallagrími, en
hún er a.m.k. ekki innskot í söguna og því ekki annars flokks heimild gagnvart
lausamálinu.) Sveinbjörn Egilsson taldi að orðið Ynglingur (eða ynglingur) í
eintölu merkti sama sem konungur, en í fleirtölu væri það haft um menn af
Ynglingaætt. En í undanfarandi ritgerð er sýnt fram á að þetta sé mjög vafa-
samt. Hvarvetna annars í fornum kveðskap er orðið Ynglingur (í eint.) greini-
lega haft um menn af Ynglingaættinni. Það vegur þungt í því sambandi að í
Arinbjarnarkviðu talar Egill um Eirík blóðöx sem „ríkan konung, Ynglings
bur“, þ.e. son Ynglinga, mann af Ynglingaætt.
í Landnámu (Sturlubók) eru synir Guttorms hinsvegar taldir bræðrungar
Haralds hárfagra, jafnframt því sem Guttormur faðir þeirra er sagður sonur
Sigurðar hjartar. Samkvæmt því hefur Guttormur verið föðurbróðir Haralds
hárfagra, en ekki móðurbróðir hans. Þessu ber saman við vísu Skallagríms,
sem kallar sveinana „börn Ynglings", en er hinsvegar í mótsögn við Heims-
kringlu og við lausamálið í Egilssögu. Höfundur ritgerðar skýrir þetta misræmi
á þann veg að tveir menn hafi borið Guttorms nafn á sömu slóðum í Noregi og
um sömu mundir, og hafi þeim verið blandað saman í arfsögnum. Annar var
Guttormur hertogi, föðurbróðir Haralds hárfagra, hinn Guttormur sonur Sig-
urðar hjartar og bróðir Ragnhildar drottningar. Frá hinum síðarnefnda var
sagt í alkunnri og ítarlegri sögu um garpinn Sigurð hjört, og því var eðlilegt að
hann tæki í sögnum sæti Guttorms hertoga sem verið hefur lítt kunnur á ís-
landi. í Landnámu má sjá hversu sagnir um þessa tvo menn hafa runnið saman
með þeim afleiðingum að ósamræmi verður í ættartengslunum.