Eimreiðin - 01.04.1926, Blaðsíða 48
128
ÓSVNILEG TENGSL
EIMREIDlN
Merkilegast þótti þó það, er menn fyrir tæpum 30 árum fóru
að geta talað þráðlaust langar leiðir, en þá upp úr því kom
víðvarpið til sögunnar. Þar er eins og menn vita ekkert syni'
legt né áþreifanlegt samband lengur milli þess, sem talar, °S
þess eða þeirra, sem hlusta. En aftur eru það ósýnilesar’
voldugar rafmagnsöldur, sem hér er um að ræða. Víðvarps'
stöðin varpar rafmagnsöldunum víða vegu og alt í kring
og sterkur ljósgjafi, sem varpar ljósinu frá sér eins langt oS
orkan nær. Og það eru þessar rafmagnsöldur, sem aftur snu-
ast upp í hljóðsveiflur í viðtökutækjum hlustenda.
En eru þá til nokkur fleiri ósýnileg tengsl en þessi? 5a’
nú kem ég einmitt að merkilegustu tengslunum, andlegu °S
veraldlegu tengslunum, er gera okkur öll fyrst og frems*
að tilfinningaríkum viti bornum verum og síðan að þjóð, setl)
talar sömu tungu og á sömu sögulegu minningar. Lítum Þa
fyrst á þessi andlegu tengsl.
Þið vitið það öll, að ekki þarf nema eitt augnatillit til þesS
að vekja hjá manni hinar heitustu hvatir og óskir. Hvað veld
ur því t. d., að maður verður ástfanginn?
Hvarmbragð eitl, það undrum veldur,
instu flýgur gengum taug;
það var heitt, ó, það var eldur,
þaðan líf og kraftur flaug.
Hvernig stendur á þessu? Jú, áhrifin utan að, ljósvaka
sveiflurnar, vekja ákaft orkustreymi í líkama og sál æskn
mannsins, þegar hann verður ástfanginn. Hann er þá unC^r
það búinn, að kveikt sé í honum, og hugur hans stendur áður
en hann veit sjálfur af, í björtu báli og knýr hann til athafa3-
í sjálfum honum eru svo nefndir magnar (hormones), er flV*la
boðin um allan líkamann.
Þið vitið það líka öll, að eitt einasta orð getur tendrað h
finningar okkar, ýmist sært okkur eða kætt:
Hjartað líkist hörpu naemri,
hljómar strax og snortið er,
má það ei við. meðferð slæmri,
merkin öll það lengi ber.