Eimreiðin - 01.04.1926, Síða 50
130
ÓSÝNILEG TENGSL
EIMREIÐIN
það niður, sem hin byggir upp. Því þegar fjandskapurinn gýs
upp milli manna og þjóða, þá rís maður gegn manni, stélt
gegn stétt og þjóð gegn þjóð, og þá gýs upp ófriðareldurinn,
sem öllu eyðir. Samt sem áður verðum við öll samþola eftiT
sem áður, hljótum að súpa seyðið af orðum og gjörðum
hvers annars.
Ég skal nefna dæmi.
Það eru nú um 20 þúsund manns, sem stunda sjávarútveg
á Islandi, og alt líf okkar Islendinga hangir svo að segja J
þessari einu taug, alt mæðir á þessari einu atvinnugrein, ÞV1
að landbúnaðurinn er ekki orðinn nema tæpur áttungur allrar
framleiðslunnar. Það liggur því í augum uppi, að allri þi^'
inni er stefnt í voða, ef nokkrar hömlur eru lagðar á sjávar'
útveginn aðrar en þær, sem nauðsynlegar eru, hvort heldur
er af náttúrunnar hálfu eða mannanna.
Þegar hafísinn legst að landinu eða einhver landfarsóttu1
geisar eða einhver önnur óáran dynur yfir þjóðina, þá finnum
við fljótt, að við erum öll samþola og hljótum að bera hvert
annars byrðar.
En margt annað ólán getur líka hent okkur, og sjálfskapar'
vítin, er af sundurlyndinu stafa, eru einna verst. Það er nU
orðið alsiða um öll lönd, að verkbönn og verkföll séu hafm,
þegar einhver misklíð rís á milli stéttanna, og sá siður hefur
nú einnig fluzt til okkar. Þessi vinnustríð geta stundum verl,
sjálfsögð nauðvörn, þegar annarhvor aðilinn fer of lanð^
kröfum sínum eða atvinnugreinin getur ekki lengur borið kröfur
þær, sem til hennar eru gerðar; en að þeim ætti þó aláre’
að hrasa að rasanda ráði, því að þau verða jafnaðarleS3
öllum aðiljum og þjóðfélaginu í heild sinni til meins og
Hér var nýlega stofnað til verkfalls meðal verkamanna og
verkbanns af hálfu vinnuveitenda. Þótt það stæði ekki nema
nokkuð á aðra viku, mun það hafa kostað verkamenn her
Reykjavík eitthvað á annað hundrað þúsund krónur í vinn,^j
tjón, og vinnuveitendur munu heldur ekki hafa spunnið sl
við það, þegar öllu er á botninn hvolft. En þetta sýnir, ^
ósýnileg fjárhagstengsl eru milli allra þeirra, er vinna
sama starfi, og jafnvel milli allrar fjelagsheildarinnar. OS P
sýnir, að verkbönn og verkföll eru tvíeggjuð sverð, er =