Eimreiðin - 01.10.1926, Blaðsíða 37
EIMREIÐIN
SÁLARLÍF KONUNNAR
309
gera ilt af sér. Sem dæmi þessa má nefna frönsku aðals-
dömurnar á undan stjórnarbyltingunni, sem fundu upp á hin-
ótrúlegustu hlutum, til þess að eyða með tíma sínum og
Peningum eiginmanna sinna. Þessar konur urðu svo að segja í
e'nu vetfangi að iðnum, ágætum húsmæðrum, þegar stjórnar-
Wltingin gerði þær eignalausar og flæmdi þær til framandi
landa. Þær unnu þá hvað sem fyrir kom með léttri og glaðri
lund og vöktu með því aðdáun þjóða þeirra, sem þær leituðu
^®lis hjá. Vafalaust voru þær í raun réttri sælli en þær höfðu
yerið á iðjuleysis- og auðæfaárum sínum.
Margur ríkismaðurinn þolir ekki að sjá konu sína og dætur
v'nna, en það er í sannleika einn hinn mesti bjarnargreiði,
Seni hann getur gert þeim, að láta ekki starfsþrá þeirra fá
heilbrigða fullnægju. Það er ekki sjaldgæft nú á dögum, að
dætur miljónamæringanna í Ameríku og ungar aðalsmeyjar í
Norðurálfunni yfirgefi foreldrahúsin þvert á móti vilja foreldr-
anna, og þá sérstaklega feðranna, til þess að fara að vinna
fyrir sér sjálfar sem kenslukonur, hjúkrunarkonur o. s. frv., og
ern venjulega miklu sælli við þau störf en þær voru áður, á
^eðan þær voru dæmdar til iðjuleysis.
Konan á á hinn bóginn erfitt með að skilja tilhneigingu
’Pannsins til iðjuleysis og til þess að hugsa, án þess að starfa.
^®ði karl og kona þurfa að læra að skilja eðli hins og taka
l'Hit til þess, og mun þá betur fara en áður.
Eg laet nú hér staðar numið við það að skýra frá efni
kókarinnar, en vil bæta við nokkrum orðum frá eigin brjósti.
Es ætla að vísu ekki að segja neitt um það, hvort það sem
e9 hef hér skýrt frá, muni alt vera réttmætar ályktanir um
sálarlíf karla og kvenna. En gaman er að velta fyrir sér þeim
^"Ssunum, sem koma fram í bók þessari, og heimfæra þær
UPP á það, sem fyrir mann hefur borið á lífsleiðinni.
^æri ekki vert fyrir sum hjón, sem finna til þess sjálf, að
satnbúðin er ekki eins góð og vera skyldi, þó að þeim þyki
vænt hvoru um annað að athuga samlíf sitt í ljósi þessara
skoðana. Mun ekki t. d. margur eiginmaður gera of lífið að
Pv' að láta þakklæti í ljós við konu sína fyrir alt stríð hennar
°9 umhyggju fyrir heimilinu? Mundi hann ekki gera það oftar