Eimreiðin - 01.10.1926, Síða 38
310
SÁLARLÍF KONUNNAR
EIMREIDI^
en hann gerir, ef honum væri það fyllilega ljóst, hvers
það er konunni. Margri elskandi konu mun einlægt þakklseti
eiginmannsins meira virði en matur og drykkur, og fátt wuf1
sál hennar meiri endurnæring en viðurkenningin af hans hálfu-
Séra Matthías ]ochumsson getur þess á 376. bls. í SöSr«'
köflum af sjálfum mér (viðbætinum), þar sem hann skýrir fra
endurminningum sínum um Jón Sigurðsson og konu hans, a^
það hafi verið venja Jóns, »þegar sezt var til borðs og hun
tók sæti sitt, að hann talaði fyrst til hennar og helzt ánæg|U'
orð og viðurkenningar fyrir hennar frammistöðu. Skein úr þvl
ánægjan eins af hennar svip sem húsbóndans*.
Jón Sigurðsson var glöggur á margt. Þetta sýnir oss, a^
hann hafði uppgötvað þau séreinkenni konueðlisins, sem mörS'
um sést yfir. Hann getur víða verið íslendingum til fyrir'
myndar. Forsetinn mikli rýrnar ekki í augum vor kvennanna-
er vér heyrum, hve nærgætinn eiginmaður og húsbóndi hanu
var. Hann stækkar og verður enn dýrlegri fyrirmynd.
Ekki finst mér eg geta efast um það, að eitt aðaleinkennið
á sálarlífi konunnar sé þörfin á að lifa og fórna sér fyrir
eitthvað utan við hana sjálfa. Hugsið um þær konur, sem Þer
hafið þekt bezt. Hugsið um húsmæðurnar; hafa ekki þ®r
beztu þeirra verið eins og mæður, ekki eingöngu alls heim'
ilisfólksins síns, heldur líka allra sjúkra og aumra, sem Þ^r
náðu til og höfðu tækifæri til að rétta hjálparhönd. HuSsl
um gömlu, tryggu, ógiftu vinnukonurnar, sem tóku þeirri tryS°
við húsbændur sína og börn þeirra, að þær hugsuðu í öllun1
greinum meira um þeirra hag en um sjálfar sig.
Margar eru breytingar og byltingar síðustu ára. Þær breyf
ingar hafa tekið til konunnar jafnvel öllu meira en mannsms-
Konan, sem áður var eingöngu háð heimilinu og störfu111
þess, getur nú gefið sig svo að segja við öllum starfsgreiuulT1
mannsins. Meira og meira starfar nú konan utan heimilis111^
bæði í félögum og til þess að vinna fyrir sér og sínum. Pa
er þá nógu gaman að athuga, að hvaða starfsgreinum
hvers konar félagsskap konan hefur hallast, þegar heimurm11
opnaðist henni á þennan hátt.
Margar ungar stúlkur fara í búð eða starfa á skrifstofu, en
fáar munu það vera, sem geta hugsað til þess, að þetta e'31