Eimreiðin - 01.04.1928, Side 17
EIMREIÐIN
Kairo-för.
Þegar maður fer um Súez-
skurðinn, ber það oft á góma,
hvort ekki sé mögulegt að
nota tækifærið, á meðan
skipið sé í skurðinum, til
þess að komast til Kairo, höf-
uðborgar Egyftalands. Fyrir
flestum vakir þá, að gaman
væri að líta pýramídana í
Gizeh eigin augum.
En niðurstaðan er venju-
lega sú, að ekki verður far-
ið til Kairo. Flest farþega-
skip fara svo fljótt yfir, að
það er ekki mögulegt.
Það bar því vel í veiði
Björgúlfur Ólafsson. vorið 1926, þegar ég kom
austan úr Austur-Indíum. Þá
v>ssum við, farþegarnir, í tæka tíð, að skipið átti að liggja
^riá daga í Alexandríu. Það var því nógur tími til að sam-
^ælast til ferðarinnar og vera tilbúinn, þegar komið væri til
Súez. við suðurenda skurðsins, en þar ætluðum við að fara
a^ skipinu og ná því aftur í Alexandríu.
komum til Súez kl. 2 e. h. og ráðgerðum að fara
taðan af stað til Kairo með járnbrautarlest kl. 5, og þótt-
Urnst því hafa nógan tíma. En þegar til kom, gekk öll af-
Sreiðsla skipsins seinna en við höfðum búist við. Sóttvarnar-
10 staðarins grunaði okkur um að hafa einhver óheilindi inn-
nnborðs, svo sem kóleru, pestina eða aðrar plágur, sem nú
aib ekki að hleypa inn í landið aftur eins og í gamla daga.
klPÍð var því skoðað og svo skipshöfn og farþegar. Síðan
Var eitthvað sótthreinsað, skift um drykkjarvatn o. fl. Af þessu
Varð nokkurra klukkustunda töf. Ferðamenn hugsa sjaldan út
8