Eimreiðin - 01.04.1928, Blaðsíða 76
172
FRÁ GRÍMSEY
EIMREIÐIN
lekninga. — Þegar ég kom til eyjar árið 1924, uoru þrír
gamlir Grímseyingar lifandi, en nú, 1928, eru þeir allir dánir.
Þegar minst er á þessi tímamót, verður ekki gengið fram
hjá manni nokkrum, sem flutti til eyjar nokkrum árum eftir
aldarbyrjun. — Maður þessi er Steinólfur E. Geirdal1), fyrrum
kaupmaður og útgerðarmaður á Húsavík. I 13 ár hefur hann
verið barnakennari sveitarinnar og forgöngumaður fjölda
Frá Sandvík.
þeirrá framfara, sem komist hafa hér á í verzlun, búnaði og
sjávarútveg. Hann er fjölhæfur áhugamaður, sem hann á kyn
til, og svo stórhuga, að fáa getur slíka, með jafn-bundnar
hendur. Félagslíf og samtök til almennra þarfa eiga hjá hon-
um sitt öflugasta vígi.
Fyrir 28 árum var hér ekki eitt einasta timbur- eða stein-
hús, en nú eru hér 10 slík; 5 þeirra hefur hann bygt, ^irt
eru barnaskólinn (vandað timburhús), prestshúsið í Miðgöfð
1) Steinólfur er Eyjólfsson Bjarnasonar prests í Garpsdal (d. 1863)
Eggertssonar prests (d. 1856) Bjarnasonar landlæknis Pálssonar og k°n
hans Rannveigar Skúladóttur Iandfógeta. — Móöir Steinólfs, Jóha'1113’’
kona Eyjólfs, er Halldórsdóttir prests í Tröllatungu (d. 1888).