Eimreiðin - 01.04.1928, Blaðsíða 22
118
KAIRO-FOR
eimreiðin
verzla við Araba og Grikki. Blámenn sunnan úr Núbíu bera
þungar byrðar, og Bedúínar leigja ferðamönnum úlfalda og
fylgja þeim um sandana. Og allir virðast þeir vera samhentir
í því, að skaðast ekki peningalega á útlendum ferðamönnum-
Gistihúsin í Kairo, þau sem hýsa Norður- og Vesturálfu-
menn, sem þangað koma sér til skemtunar eða heilsubóta,
eru mjög stór og dýrðleg, og heimsfræg sum þeirra fyrir
skraut og fagnað. Og eftir því fer borgunin fyrir gisting og
annan greiða. Mörg þeirra eru ekki opin nema lítinn tíma
árs, miðsvetrarmánuðina, þegar fólk úr fjarlægum löndum
flykkist þangað til þess að njóta hins dásamlega loftslags,
sem þar er þá: Loftið þurt og þægilega svalt, sólskin frá
morgni til kvölds, og aldrei kemur skúr úr lofti. Hinn tíma
ársins er óþægilega heitt, og þangað kemur þá enginn. Hin*
um miklu gistihúsum er þá lokað. Það er því líklegt, að eiS'
endur þykist þurfa að nota tækifærið meðan opið er.
Morguninn eftir að við komum var hitinn 20° C. og þægi'
Iegt veður. Himininn algerlega heiður, og það er víst, að Þá
tvo daga, sem við vorum þar, sást ekki ský á lofti.
Nú var farið að skoða borgina, og réðum við okkur Araba
einn til fylgdar. Hann hét Mohamat Hassan og talaði ensku
fullsæmilega. Götunöfn eru þarna öll með arabisku letri og þvl
ekki lesandi kristnum mönnum. Framundan gistihúsinu en
Óperutorgið, þar er söngleikhúsið; það var bygt 1871, og Þá
var leikinn þar í fyrsta skifti söngleikurinn Aida, sem Verdi
hafði samið fyrir það tækifæri. Rétt við torgið er listigarður
mjög prýðilegur; hann heitir Ezbekieh. Mohamat fór nú me^
okkur í þann hluta borgarinnar, sem innlendir menn búa '•
Við fórum þar um margar götur og torg, komum að kon-
ungshöllinni, sem er stórhýsi mikið, litum á ýms musteri o3
skóla, en fórum því næst að skoða nokkru nánar hin helstu
musteri borgarinnar og komum fyrst að musteri því, sem hent
er við Hassan soldán. Það er í lögum Mohamets, að van'
trúaðir mega ekki koma inn í musteri hans, nema þeir
af sér skóna. Hið sama gera Mohametstrúarmenn sjálfir og Þv0
fætur sínar áður en þeir ganga í musterin. Meiningin er sjálf'
sagt sú, að menn eiga að ganga berfættir í musterin. En Þa
myndi baka mönnum tafir og óþægindi að verða að fara ur