Eimreiðin - 01.04.1928, Síða 29
eimreidin
KAIRO-FOR
125
ingahús. Mér leizt þessi hluti borgarinnar svipaður Parísar-
borg að byggingarlagi. Þar er fult af sölubúðum, þar sem
seldir eru egyfzkir »forngripir« dýrum dómum, alt mörg þús-
und ára gamalt. Einstöhu menn glæpast líklega á þessu dóti,
sem auðvitað er »made in Germany*. Þessi borgarhluti
nær frá miðju borgarinnar út að Níl, og eru listigarðar á
árbökkunum.
Norðanvert við garð-
ana er hið fagra lista-
safn borgarinnar. Safn-
húsið er stórhýsi, bygt
1 Srísk-rómverskum stíl.
^ar er saman komið
h>ð langmesta safn af
forn-egyfzkri list, sem
hl er, og er það eitt
hið langmesta listasafn
’ heimi. Mest ber þar
a höggmyndalist og
hyggingarlist; þó má
^íótt sjá þess vott, að
Egyftar hinir fornu hafa
látið mikið til sín taka
a ýnisum öðrum svið-
Um þeirra lista, sem
nú eru tíðkaðar. Eins Kairo.
°9 gerist um alla forna
hsk standa flest listaverkin að einhverju leyti í sambandi
við trúarbrögð og helgisiði þjóðarinnar. Menn kannast við
hinar stórvöxnu og afbrigðilegu guðamyndir Egyfta, súl-
Urnar úr hofum þeirra og ýms önnur listaverk, sem geymd
eru í söfnum um víða veröld. Einnig þekkja menn hina mikil-
fenglegu greftrunarsiði þeirra. Meðferð líkamans eftir dauð-
at1n hefur verið þeim hið innilegasta alvörumál, enda er það
ehki sízt einmitt á sviði þeirra lista, sem nota þarf í sam-
andi við greftrunarsiðina, að hugvit og snilli hinnar háment-
Ut5u stórþjóðar hafa tekið höndum saman við takmarkalaus
au5æfi til þess að skapa svo dásamlegar gersemar, að það