Eimreiðin - 01.04.1928, Blaðsíða 77
eimreiðin
FRÁ GRÍMSEY
173
uni, verzlunarhús með íbúð, eign Páls Kristjánssonar á Húsa-
vík, verzlunarhús Bjarna Benediktssonar á Húsavík og hið
9amla fiskhús (og verzlunarhús) Örum & Wulfs, nú eign Stefáns
Guðjohnsens á Húsavík.
Allstórt íbúðarhús úr steini, hið fyrsta hér, bygði Steinólfur
árið sem leið, og nú hefur hann í smíðum stórt fisk- og
verzlunarhús. Smiður er hann bæði á tré og járn; verzlun
fekur hann töluverða sem stendur, og vélbáta-útgerð hefur
hann rekið mörg ár. Auk þessara bygginga eru hér 3—4
fiskiskúrar.
Mikinn þátt í að breyta lífsskilyrðum eyjarbúa til þess betra,
9era samgöngur örari og auðveldari, byrgja eyjuna með nauð-
sYnjavörur o. fl. hafa þeir átt Húsavíkurkaupmennirnir Bjarni
Benediktsson og Páll Kristjánsson, eftir að þeir stofnuðu hér
útibú fyrir 5—6 árum. (Niöurl. næst).
Steindór Sigurðsson.
Pílagrímur.
í eyrum sviftinga-súgur
og soltinna ljóna org —.
I augum hálfrökkur haustsins,
— í hjarta nístandi sorg.
Áfram — einn, tveir, þrír —
austur í Jórsalaborg.
Hann gengur við staf og stefnir
á stjörnu þar austur frá. —
Á baki hans blunda syndir,
— í brjósti hans vakir þrá.
Áfram — einn, tveir, þrír! —
Ögrandi’ er fjarlægðin blá.