Eimreiðin - 01.04.1928, Page 79
eimreiðin
Bjartsýnn öldungur.
Eðlisfræðingurinn heimskunni, Sir Oliver Lodge, sem nú
er kominn hátt á áttræðisaldur, hefur nýlega látið uppi álit
sitt um það, hverja framtíð mannkynið eigi í vændum. Rit-
9erð eftir hann um þetta efni birtist síðastliðinn vetur í einu
af merkustu tímaritum Englendinga. Sir Oliver horfir von-
Sóður fram í tímann. Hann álítur, að bjartsýnin eigi fullan
rett á sér. En það er eftirtektarvert, að bjartsýni hans grund-
vallast ekki á »tekniskum« framförum né umbótum í vél-
fræðilegum efnum, þó að hann sé sjálfur einn með djúpsæ-
ustu könnuðum á þessu sviði, sem nú eru uppi. Hann hefur
att mikinn þátt í eðlisfræðilegum umbótum síðustu áratuga og
er einn af brautryðjendunum í sögu þráðlausrar firðritunar.
En hann treystir ekki vélamenningunni. Von sína byggir hann
a öðrum forsendum. Þrjár eru ástæður þær, sem hann telur
fyrir bjartsýni sinni, og er sú síðasta veigamest, að hans
er9in áliti.
Bjartsýni mín á framtíð mannkynsins, segir Sir Oliver
Lodge, grundvallast í fyrsta lagi á þeirri þjóðfélagsbyltingu,
sem orðin er um mína daga. Árangur þeirrar byltingar er sá, að
nokkur hluti mannkynsins, sem áður var beittur hlutdrægni
°9 kúgun, er nú að öðlast lausn og sívaxandi og æ fúslegar
veitta þátttöku í meðferð málanna á þessari jörð. Ekki er þó
líklegt, að þessi hluti mannkynsins, sem er að leysast úr viðj-
Urn. fremji engin mistök. Oðru nær. Vizkan er ávöxtur tíma
°9 reynslu. En aukið frelsi og þar af leiðandi aukinn máttur
®r góðs viti; alt þetta leiðir af sér blessunarríkara starf en
a®ur. Hægt og hægt eykst samvinna manna með vitsmuni
°8 vald til að fylgja innri rödd samúðar og kærleika í
ríkara mæli og á róttækari hátt en áður hefur átt sér stað
fireðal vor.
í öðru lagi lít ég vonglaður fram í tímann vegna hins
mfðfædda góðvildar- og sjálfsfórnareðlis óbreyftra meðbræðra
minna — og systra. Það er ekki ýkja-oft sem ytri kringum-