Eimreiðin - 01.01.1929, Page 22
2
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐlNt
mikinn árangur, — rétt þráfaldlega við hluta hinna minni
máttar í þjóðaviðskiftum, afstýrt ófriði og unnið mikið og víð-
tækt mannúðarstarf. Þó að ekkert lægi annað eftir Þjóða-
bandalagið en mannúðarstarfsemi þess, þá væri það eitt út
af fyrir sig nægilegt til að sýna, hve mikill tilveruréttur þess
er, og að það á skilið óskift traust einstaklinga og þjóða. I
apríl 1920 stóðu um hálf miljón herfanga uppi allslausir og
áttu engin tök á að komast heim til átthaganna. Svo slæmt
var ástandið, að búist var við, að í Síberíu einni mundi um
120.000^ til 200.000 herfangar verða hungurmorða þá um vet-
urinn. í samráði við stjórn Rauða krossins og aðrar líknar-
stofnanir tók Þjóðabandalagið að sér fram-
kvæmdirnar um heimflutning fanganna og
setti dr. Friðþjóf Nansen til þess að vera
aðalframkvæmdastjóri þessa vandasama
verks. Þó að dr. Nansen fengi ekki nema
400.000 sterlingspund milli handa til þessa
starfs, sem að vísu er mikið fé, en var
þó ófullnægjandi til þess að fæða og flytja
hálfa miljón manns, leysti hann þessa þraut,.
sem Þjóðabandalagið lagði fyrir hann, svo
vel af hendi, að 1. júlí 1922 var starfinu
Friðþjófur Nansen. lokið, en alls höfðu 427.386 herfangar verið
fluttir heim, hver til sinnar ættjarðar, og
voru þeir frá 26 þjóðum. Á svipaðan hátt hefur Þjóðabanda-
lagið hjálpað flóttamönnum þeim frá Rússlandi, sem flýðu
til Vestur-Evrópu í rússnesku byltingunni. Meir en hálf önnur
miljón rússneskra flóttamanna stóðu uppi allslausir, án þess
að eiga nokkursstaðar höfði sínu að að halla, þegar Þjóða-
bandalagið fól dr. Nansen að ráðstafa þessu fólki. Var unnið
að þessu verki með ótrúlegum dugnaði, og um sama leyti bjargaði
Þjóðabandalagið 25000 rússneskum flóttamönnum frá hungur-
dauða í Konstantinópel og kom þeim fyrir víðsvegar um Evrópu
og Ameríku, en fé til þessarar starfsemi fékst fyrir framlög
frá ýmsum þjóðum, einkum Bandaríkjamönnum og Bretum.
Það yrði of langt mál að rekja hér nokkuð að ráði hina
margvíslegu hjálparstarfsemi Þjóðabandalagsins, svo sem bar-
átta þess gegn ópíumnautn, hvítri þrælasölu, farsóttum, illri
meðferð á börnum, og öðru böli, sem mest háir menningu
vorra tíma, en ef til vill verður vikið að því síðar. I óeirð-
unum milli Grikkja og Tyrkja árið 1922 streymdu 750.000
flóttamenn inn í Grikkland, og voru 4/5 af þessum fjölda konur
og börn. Þjóðabandalagið fól dr. Nansen að hjálpa þessu
fólki og útvegaði stórfé til þess, frá ýmsum þjóðum, þar á
meðal 19000 sterlingspund írá Bretum. Það hefur einnig veitl