Eimreiðin - 01.01.1929, Síða 32
12
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
son kóngsbónda með 11 atkv. gegn 10 til að vera fulltrúi Fær-
eyinga á þingi Dana. Fór kosning hans fram 24. ágúst í
sumar.
ísland 1928. Árið 1927 hafði, eins og sagt er í ársyfir- '
litinu í fyrra, verið mjög veðursælt. Árið 1928 byrjaði með
talsverðri snjókomu, einkum sunnanlands, en þá snjóa leysti
v ð , brátt, og í heild sinni varð veturinn einhver
e s’ sá mildasti, sem núlifandi menn muna. ]örð
tók að gróa í apríl, en gott framhald varð ekki á því. Að
vísu kom ekkert vorhret, en þurrakuldar töfðu fyrir gróðrinum.
Sumarið varð svo þurkasamt, að menn muna vart annað eins.
Grasspretta varð því léleg, einkum sunnanlands og á norð-
austurhluta landsins. Nýting heyja varð þó í bezta lagi um
land alt. Vfirleitt áttu menn fyrninaar frá fyrra ári, svo að
bændur voru sæmilega undir veturinn búnir. Það sem af er
vetrinum 1928—29 hefur nú um nýár mátt heita snjólaust
og veðurblíða einstök. Má því segja, að náttúran búi vel í
haginn fyrir hið komanda ár.
. Árgæzkan 1927 örvaði menn til að gera út
til fiskveiða í nokkru ríkara mæli en áður.
Togaraflotinn jókst að vísu ekki, en vélbátar voru gerðir út
fleiri. Einkum fór það að tíðkast, að setja létta hreyfla í
róðrarbáta. Togaraafli á árinu var ekki kallaður meiri en í
meðallagi, sízt miðað við lengd veiðitímans og tilkostnað, en
samlagður afli á báta og önnur skip varð meiri en nokkru
sinni fyr. Kom þetta af því, að fiskurinn hélt sig lengi vel svo
nærri yfirborði sjávar, að smærri skipin áttu auðveldara með
að ná í hann en togararnir. Aflafengur fjögra áranna síðustu
er í aflaskýrslum Fiskifélagsins talinn svo:
Ár 1925: 319.286 þur skp.
— 1926: 238.459 — —
— 1927: 316.151 — —
— 1928: 409.973 — —
Þessar tölur sýna fiskinn reiknaðan eins og hann væri allur
þurkaður, en auðvitað fer mikið af honum út óþurkað. Sýna og
útflutningsskýrslurnar, að aflaskýrslurnar eru 10°/o eða vel það
of lágar, en hlutfallið milli fiskafla þessara 4 ára er jafn greini-
legt fyrir það. Nokkur hluti hins mikla afla árið sem leið kemur
af því, að gæftir voru góðar og fiskitíminn því lengri en venju-
lega, en tilkostnaður varð þá auðvitað líka að sama skapi meiri.
Síldveiðin gekk vel að kalla má, enda þótt ekki kæmi eins
mikið á land eins og árið áður. Þrjú síðustu árin hefur síldar-
aflinn verið sem hér segir: