Eimreiðin - 01.04.1937, Qupperneq 79
eimreiðin
Nýir heimar.
Eftir Svein Sigurðsson.
I.
Síðan ísland komst í ritsímasamband og nú síðar í tal-
samband við önnur lönd, og eftir að samgöngur hafa aukist
a alla lund, eins stórkostlega og raun ber vitni, berast allar
nýjar stefnur og hreyfingar í andlegum málum, stjórnmálum,
bókmentum og listum hingað hraðar en áður voru dæmi til
' og eru orðnar gamlar og úreltar áður en varir. I3essar
stefnur og hreyfingar eru hér á ferðinni urn líkt leyti og í
nagrannalöndunum. Þær koma og hverfa, skilja ef til vill
^itthvað eftir, sem setur svip á oss hér heima um stund, af
því vér erum oft næmai'i fyrir nj'jungum en aðrar stærri
Þjóðir. En þessi svipur víkur svo smámsaman fyrir öðrum.
y®r höfum í trúmálum fengið hingað flestar stefnur og hrær-
lngar nágrannaþjóðanna. En það eftirtektarverða er, að ein-
mdt í þeim málum erum vér sjálfstæðari gagnvart hinum er-
lendu sérstefnum og hreyfingum en í flestum öðrum málum. Vér
böfum fengið þær yfir oss hverja eftir aðra, nú síðast Oxford-
breyfinguna og dr. Halleshy, en hvorki hún né Hallesby
'•rðast ætla að valda nokkrum aldahvörfum í andlegu líli
'°ru, og eru þó báðir þessir aðilar áhrifamiklir. —- Vér höf-
Uln fengið hingað í bókmentum rómantík, realisma, modern-
isma, — í stjórnmálum, sósíalisma, kommúnisma, national-
sosialisnia, — í listum expressionisma, impressionisma, kúb-
'snia, surrealisma — og hvað þeir nú heita allir þessir
>usniar« undanfarinna ára. En vér höfum verið furðu-fljótir
a^ átta oss á þessum »ismum«, liirða það sem í liag kom
'orum þjóðháttum, en láta liitt fara sinna ferða inn um
annað eyrað og út um hitt. Þrátt fyrir íslenzka nýjungagirni,
sem réttara væri þó að nefna fróðleiksfýsn, ná »ismarnir«
nldrei tökum á oss, lieldur tökum vér undir með skáldinu
Guðrnundi Guðmundssyni, þegar liann kveður:
uig varðar ekkert um »isma« | og »istanna« þrugl um list!
ng flýg eins og lóan mót sól i söng, | þegar sál min er ljóðaþyrst.