Eimreiðin - 01.04.1937, Side 82
202
NÝIR HEIMAR
EIMREIÐIN
öllu þessu vonleysi eftirstríðsbókmenlanna brýst svo þjóðfé-
lagsbyltingin út, eins og geisli í myrkrinu. Hún flytur með
sér fagnaðarerindi marxismans, sem sættir rithöfundana um
stund við lífið, •— en aðeins um stund.
Því hér reyndist ekki að vera um það fagnaðarerindi að
ræða, sem frelsað gæti beiminn. Með stjórnarbyltingunni í
Rússlandi og hinum endurmagnaða marxisma i kjölfar henn-
ar áttu að vera fundin smyrsl á þau sár, sem styrjöldin hafði
valdið. Þau smyrsl áttu að græða meinin, og upp úr ragna-
röldcri ófriðarins að rísa nýr himinn og ný jörð. En hér
verður efnishyggjan aftur þröskuldur í vegi. Því þó að lnin
Iiefði beðið gjaldþrot með heimsstyrjöldinni, þá var öðru nær
en að hún væri úr sögunni. Það hefur reyndar oft verið
leitast við að sanna, að marxisminn væri ekki efnishyggju-
kend lífsskoðun, og að maður geti vel verið marxisti án þess
að viðurkenna efnishj'ggjuna. En allar tilraunir til að sanna
slíkt verða sér fyrirfram til minkunar, eins og norski rithöf-
undurinn Ivar Digernes kemst að orði.1) Marxisminn vill
þurka út alla trú á tilveru utan skynheimsins og alla
guðsdýrkun. Hann er því »og verður sú eiudregnasta og
sjálfri sér samkvæmasta efnishyggja, sem til er, og gefur
aldrei gengið inn á nokkurn mismun milli þjóðfélagsins og
náttúrunnar eða milli anda og efnis«.
Með minkandi lýðhylli eftirstríðsbókmentanna erlendis fara
áhrif þeirra á islenzka höfunda og almenning þverrandi. Hin
marxistiska bókmentastefna, sem rís upp úr rússnesku bylt-
ingunni, liefur þegar tekið gagngerðum breytingum, enda nú
orðin yfir tuttugu ára gömul og farin að verða fyrir áföllum
af brimróli annara nýrri lireylinga, þar á meðal af þjóðernis-
jafnaðarstefnunni þýzku, hvort sem þessar tvær róttæku
stefnur eiga svo enn eftir að breytast og renna saman í eina,
eins og ýmsir eru nú — næsta ólíklega — farnir að spá (sbr.
þó samdrátt Þjóðverja og Rússa í hernaðarmálum, að því er
sumir glöggustu stjórnmála- og blaðamenn í Vestur-Evrópu
telja vera á döfinni bak við tjöldin, þrátt fyrir fjandskapinn
á yfirborðinu milli þessara tveggja þjóða).
1) Sjá grein lians, Lenin kontru Idealismen, í timaritinu Vejcn Frcm, 3.
liefti þ. á. Ritstjóri þessa timarits er Nordahl Grieg.