Eimreiðin - 01.10.1943, Blaðsíða 28
300
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
.EIMRKIBIS
af yrði einn að sjálfsögðu á meginlandi Evrópu, með aðsetur
í höfuðborg þess ríkis eða ríkjasambands, sem áhrifaríkast
verður upp úr yfirstandandi styrjöld. Þá myndum vér þurfa
að hafa sendiherra í London og Washington eins og vér höfum
nú. Ekki væri óeðlilegt, að fjórði fulltrúinn ætti svo sæti með
þeirri þjóð, sem ef til vill á eftir að véra oss nátengdari en
flestar aðrar, eins og hún hefur reyndar verið að vissu leyti
um langt skeið. Ég á hér við sjálfstjórnarríkið Kanada, þar
sem fleira fólk af íslenzkum stofni er saman komið en í nokki u
öðru landi utan íslands. í Ottawa, höfuðborg Kanada, mun ís-
land fyrr eða síðar eiga útsendan fulltrúa.
Sjálfstæði þjóðar á tímum þeim, sem í hönd fara, á ekkert
skylt við einangrun, og það er algerlega útilokað, að nokkur
þjóð geti staðið fullvalda en jafnframt einangruð og út af fyrir
sig framvegis. Það virðast ekki nokkrar líkur til, að sjálf stór-
veldin geti það, hvað þá ein af smæstu þjóðum heims. Svo
raunsæir ættum vér fslendingar að geta verið að sjá þetta
alveg hillingalaust. Þessvegna er þá líka framkoma vor út á
við þýðingarmeira atriði en vér gerum oss almennt nægilega
ljóst enn sem komið er.
Nú líður óðum að lokaþætti styrjaldarinnar. Ef til vill er
hann þegar hafinn. Áður en styrjöldinni lýkur og til friðar-
samninga kemur hefur íslenzka þjóðin vonandi sýnt í verki
vilja sinn um eigin framtíð, svo að ekki verði um villzt. Þá
þarf hún ekki að óttast, að hún verði „einskonar óráðstafað
rekald“ við þau miklu reikningsskil, sem framundan eru.
Sönglag Kaldalóns.
Sönglng ]iaö ef'tir Sigvalda Kaldalóns, sem liér fer á eftir og sainið ei'
við „Ástarjátningu til fslands" eftir Hannes Hafstein, er hirt hér raddsett
fvrir karlakór, en raddsctningin er gerð af höfundinum sjálfum. í hréfi
til Eimr., dags. G. nóv. þ. á., lætur höf. þessa athugasemd fylgja mcð lag-
inu: „Ég liefði kosið, að þetta lag liefði verið sterkara en það er. en nu
finnst mér meir en nauðsyn að vekja alla fil samliugar um algert frelsi
þjóðarinnar."