Eimreiðin - 01.04.1947, Qupperneq 57
BIMEEIEIN
GAMLA STOFAN
129
skjóta, svo að blessuð fjöllin sárkenndu til. Það var ekki fallega
ííert af þeim. Svo var mynd af svissnesku fjallaþorpi, og rann
silfurtær bergvatnsá í gegnum það. Yfir ána var steinbrú, boga-
mynduð. Við amian brúarsporðinn stóðu piltur og stúlka, sem
efJ kallaði Jón og Gunnu; — ég var eins sannfærð um það þá,
að þau liétu það, eins og ég veit það nú, að þau hétu það ekki.
Hamingjan má vita, livernig ég vissi það, en ég vissi svo margt
skrítið í þá daga. Mynd þessi var dásamlega fögur, og var eins
°fl bún stækkaði og lyfti sér út fyrir takmörk umgerðarinnar, ef
lengi var liorft á liana. Þriðja myndin var af Vesuvíusi, borginni
Áapoli og Napoliflóanum; einnig var mynd þessi mjög fögur, og
liorfði ég oft á hana í óttablandinni lotnmgu, því einhver hafði
Haett mig á því, að þarna væri helvíti undir — það hafði Benedikt
Sveinbjarnarson Gröndal sagt, —- en Gröndal var mikill maður
(hann liafði skrifað Brúðardraugssöguna, það sagði amma mér)
°g sagði aldrei ósatt! Ég sá líka sjálf, að rauk upp úr fjallinu,
°fí þurfti þá framar vitna við? Fjórða myndin var af stöllunum
Hmm: Á neðsta stalli stóð keisari (myndin var þýzk). Hann var
1 skósíðri, gullofinni skikkju, bryddri dýrindis loðskinnum. Hann
hafði demantskórónu á höfði, en í hægri liendi hélt hann á
veldissprota úr gulli, en ríkiseplið liafði hann í vinstri handar-
hrika. Hann sagði: „Ég ræð yfir ykkur öllum“. Á næsta stalli
stóð prestur, skrýddur hempu og kraga. Hann sagði: „Ég bið
fvrir ykkur öllum“. Á liæsta stallinum stóð bermaðurinn með
sverðið sitt. Hann sagði: „Ég berst fyrir ykkur alla“. En á næsta
stalli fyrir neðan stóð betlari, sem liafði misst annan fótinn og
gekk á tréfæti. Hann sagði: „Ég betla af ykkur öllum“. En á
Hæsta stallinum til liægri bandar stóð bóndi, látlaus og virðu-
^egur. Hann sagði: „Ég vinn fyrir ykkur öllum“. — Þegar gamla
stofan var rifin, löngu seinna, voru þessar myndir fluttar inn í
8vefnlierbergi, þar sem ég lá, og styttu þær mér marga rauna-
stmid, en mestrar umhugsunar olli myndin af stöllunum fimm.
^ ar þetta ekki svona í raun og veru? Hermennskan hreykti sér
llæst, en á eftir lienni kom armóðurinn á tréfæti, og svo blessaður
hóndinn. Gat hann ekki með sanni sagt: „Ég vinn fyrir ykkur
°llum“, því: „Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi, því skal hann
virður vel“.
ætla aðeins að rekja örfáar endurminniugar, sem ég á frá
9