Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1947, Side 79

Eimreiðin - 01.04.1947, Side 79
EIMREIÐIN HADDIK 151 nazistarnir ráku frá heimilum sín- Um, þegar Rússarnir nálguðust. Flestir þessara flóttamanna hafa ^nisst allt, sem þeir Attu. Á þá kafði þessi sjónleikur Jóhanns á- kaflega sterk áhrif — einnig þeir köfðu orðið fyrir því, að nokk- arskonar jarðskjálfti hafði lagt í rustir bæi þeirra og jarðir. Eink- uni h'afði lokaþátturinn stórkost- leg áhrif á þá, þátturinn, þar sem Sveinungi ákveður, þrátt fyrir allt, (lu hyggja bæinn upp aftur og byrja að lifa lífinu að nýju. Það var undursamlegt að finna þá krifningu, sem þetta vakti. Þessi xjónleikur Jóhanns og „As You kike It“ eftir Shakespeare voru kezt sóttir allra þeirra sjónleika, •sewi sýndir voru í flóttamannabúð- unum“. rITHANDARFRÆÐIN °G VÍSINDIN. hrá því fyrsta að penna var stungið í blek og hann borinn að Úappír, )iafa menn deilt um, hvort 'iraga mætti ályktanir um skap- Jerð út frá rithöndinni. Á 17. öld kom ítalinn Camillo Baldi frurn. rneð nokkrar fræðilegar kenningar um rithandir manna, en Hrundvöllinn að rithandarfræð- inni (GRAPHOLOGY) lagði franski Abótinn Jean Hippolyte kfachon, og gerði grein fyrir hon- Um árið 1875 Ábótinn stofnaði Rithandar- fræðafélagið franska, en fjöl- fræðiorðabókarhöfundurinn frægi, Pierre Larousse, réðist harðlega " kenningar Machons og hélt þvi fram, að menn gætu auðveldlega ’reytt rithönd sinni að eigin vild. ffn ábótinn eignaðist marga •prisveina. Á Bretlandi fékk rit- handarfræðin eindreginn forsvars- mann, Hans Jacoby (dáinn 19lt5), en hann var áður forstöðumaður „Graphologische Gesellschaft“ í Berlín. Ekkja Jacobys, Mariana, rekur áfram rithandarfræða- skóla í Bretlandi, eftir lát manns síns. Rithandarfræði hefur verið not- uð með leynd við glæparannsóknir og í viðskiptum manna á milli i Bretlandi. Rithandarsérfræðingar leynilögreglunnar Scotland Yard hafa, með sérþekkingu sinni, oft orðið að miklu liði i morðmálum og við rannsóknir á fölsunum og svikum. Sumir dómarar viður- kenna réttmæti og nytsemi þess- ara fræða, en aðrir, svo sem dóm- arinn Rigby Swift (187U—1937), telja engan fót fyrir því, að hægt sé að draga Alyktanir um skapgerð manna út frá rithönd þeirra. A striðsárunum voru fluttir í Bretlandi allmargir fyrirlestrar um þýðingu rithanda fyrir réttar- læknisfræðina. Niðurstaðan af þeim var ekki talin afgerandi um sannleiksgildi rithandarfræðinnar. En bréfaskólar og þeir, sem reka kaupmennsku með bréfaviðskipt- um, nota oft rithandarfræðina til þess að gera sér hugmynd um skapgerð viðskiptamanna sinna. Af fimm stórum verzlunaæfyrir- tækjum i London, með póstkaupa- fyrirkomulagi, játuðu tvö, hikandi að vísu, að þau notuðu sér þessar aðferðir. Sumar opinberar starfsgreinar ríkis og bæja velja sér stundum starfsmenn að nokkru leyti með tilliti til þess, hversu rithönd þeirra reynist festuleg og skýr. Málfærslumenn leita oft til rit- handarsérfræðinga, þegar þeir

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.