Eimreiðin - 01.07.1948, Blaðsíða 23
eimreiðin
Gyðingar, Arabar og Palesiína.
Eftir Baldur Bjarnason.
Land þa3, er nefnist Palestína, syðst og vestast í Asíu, fyrir
botni Miðjarðarhafs, hefur löngum verið mikið þrætuepli vegna
legu sinnar, vegna þess, að það liggur á krossgötum Asíu og
Afríku, þar sem verzlunarleiðir Miðjarðarhafslandanna mætast.
Enn á ný er það orðið styrjaldarsvæði. í þetta skipti eru það
Gyðingar og Arabar, sem deila um völdin í landinu.
Þegar Gyðingum 1917, samkvæmt hinni svonefndu Balfour-yfir-
lýsingu, var lofað landinu og það sett undir enska vernd, fóru
þeir smám saman að streyma til landsins. Árið 1917 bjuggu í
landinu 6—700 þúsund manns, meginþorri þeirra var Arabar eða
9/10. Nú búa þar 6—700 þúsund Gyðingar, Arabar eru nærfelt
belmingi fleiri. Svö mikið liefur aðstreymið verið til landsins
síðast liðin 30 ár. Framfarirnar liafa verið afar miklar, júðskir
bændur liafa breytt stórum lendum, sem áður voru melar og
óræktarmóar, í aldinreiti og akra. í borgunum hefur risið upp
nýtízku stóriðnaður, verzlun og siglingar liafa blómgazt, og þess
vegna bafa hundruð þúsunda af arabiskum mönnum strevmt
þangað úr nágrannalöndunum til þess að fá vinnu. Eigi að síður
eru margir menn í arabiskum löndum mjög óánægðir yfir þessari
þróun, vegna þess að þeir líta á Palestínu sem arabiskt land og
líta á Gyðinga sem útlendinga. Þess ber strax að geta, að Arabar
er ekki ein þjóð. Þegar Múbameð spámaður liafði safnað öllum
Aröbum saman á 7. öld í eitt ríki og snúið þeim til réttrar trúar,
Islam, þá fóru þeir að leggja undir sig lönd og komu síðan upp
beilu heimsveldi, sem náði alla leið að Indusfljóti og til vestur-
stranda Afríku og breiddu Múliameðstrú yfir allt þetta svæði.
Múhameðstrúin breiddist einnig út til margra annarra landa,
bæði í Asíu og Afríku, líka eftir að arabiska heimsveldið liðaðist
1 sundur. í margar aldir höfðu Arabar einnig fótfestu á Spáni.
Arabiskan varð mál klerka og lærðra manna í öllum múbameðsk-
uni löndum. Flestar múhameðskar þjóðir liéldu þó tungu sinni,