Eimreiðin - 01.07.1948, Blaðsíða 54
214
ÍSLAND 1947
EIMREXÐIN
Garftrœktin skilaði miklu rýrari uppskeru en árið áður. Áætlað
er, að kartöfluuppskeran liafi numið aðeins helmingi af því, sem
hún varð árið áður, eða um 50.000 tunnum. Rófnafengurinn var
áætlaður um 10.000 tunnur (árið áður um 12.000).
Loftdýrarœhtin drógst enn saman, einkum silfurrefaræktin,
vegna lítillar eftirspurnar eftir skinnunum. Eigendur loðdýra
voru um 200, í stað 275 árið áður.
Af landafurðum var flutt út sem liér segir:
1947 1946
Freðkjöt .............. 1029 tonn 4,9 millj. kr. 900 tonn 4,1 inillj. kr.
Saltkjöt .............. 1560 tn. 0,8 — — 1760 tn. 0,8 — —
Garnir................... 35 tonn 0,7 — — 44 tonn 0,9 — —
Ostur .................... 9 — 0,03 — — 55 — 0,15 — —
TJll ................... 562 — 5,1 — — 796 — 8,6 — —
Gærur ................ 269 þ. stk. 5,0 — — 658 þ. stk. 9,9 — —
Skinn, söltuð........... 116 tonn 0,6 — — 94 tonn 0,7 — —
Sú þróun, er minnst var á í fyrra árs yfirliti um aukna vélyrkju,
liélt áfram í vaxandi mæli. Innflutningur á landbúnaðarvélum
árið 1947 nam 7 millj. króna, í stað 5,5 millj. árið áður. Eru þó
þar ekki taldir jeppabílar og dragvélar, sem að miklu leyti áttu
að fara til bænda. En af jeppum voru fluttir inn 729, fyrir 5,8
millj. kr. (1946: 564, f. 4,4 millj.) og dragvélar fyrir 3,1 millj.
(3,6). — Innflutningur tilbúins áburðar nam 9300 tonnum (9004).
Reyndist það of lítið, vegna liinnar vaxandi ræktunar. Þá hefur
einnig vaxið mjög þörf fyrir fóðurbæti og hænsnafóður. Af slíkri
vöru var flutt inn á framleiðsluárinu um 15000 tonn, auk notkun-
ar inulends síldar- og fiskimjöls, sem hafði numið um 7000 tonn-
um. — Styrkur úr verkfærakaupasjóði nam á árinu 80 þús. kr.
(132 þús.), og styrkur í sambandi við notkun skurðgrafa (er voru
27 að vinnu) 244 þús. kr. (196 þús.). — Jarðabótastyrkur að með-
talinni 193% dýrtíðaruppbót nam 3,3 millj. kr. (2,2 millj.).
Á árinu tók til starfa svonefnt „framleiðsluráð landbúnaðar-
ins“, er liefur á liendi verðskráningu, verðmiðlun og sölu á land-
afurðum. — Landbúnaðarsýning var opnuð í Reykjavík síðast
í júní, og sóttu liana rúm 60 þús. manns víðsvegar af landinu.
Uppbætur ríkissjóðs vegna landafurðanna urðu (sbr. Skýrslu
Landsbankans 1947) rúmar 32 millj. króna. Að nokkrum parti
er þetta því að kenna, að ekki fæst fyrir útfluttu afurðimar rétt