Eimreiðin - 01.07.1948, Side 55
EIMREIÐIN
ÍSLAND 1947
215
verð vegna þess, að gengi íslenzku krónunnar er haldið of háu.
En allt um það dylst ekki, að þarfir landbúnaðarins eru orðnar
svo miklar, að þær geta orðið atvinnulífi landsins í heild ofviða,
ef illa árar. Er það og mjög í samræmi við það, sem spáð hefur
verið fyrir löngu hér í Eimreiðinni, ef ekki yrði nevtt allrar orku
til að færa byggðina mátulega saman í ræktarhverfi. Þessu hefur
mjög lítið verið sinnt, þótt nú loks sé skilningur að glæðast á
þeirri liagfræðilegu staðreynd, að afurðaframleiðsla í dreifbýli
með dýrum vélkrafti og flutningum getur aldrei keppt við hagsýnt
skipulag, nema með því að slíta sér út, lifa á styrkjum og selja
dýrt.
Sjávarútvegurinn. Fiskaflinn varð talsverður að vöxtum
árið 1947, enda var sjósókn í vexti. Hinir nýju, stóru togarar
voru einmitt að byrja að koma í notkun og reyndust miklu af-
kastameiri en hinir eldri. Þeir komu 21 til landsins á árinu, ásamt
22 stórum vélbátum. Hin vaxandi verðþensla liér innanlands
hafði gert útgerðina svo kostnaðarsama, að ljóst var, að vélbáta-
flotinn hlaut að tapa með því verði, sem verið hafði á fiskinum.
Var þá gripið til þess örþrifaráðs að tryggja útgerðarmönnum
fast lágmarksverð fyrir útfluttan saltfisk og freðfisk. Jafnframt
var verð á ferskfiski hækkað um 30%. — Heildarafli á fiski upp
var sem hér segir síðustu árin („Ægir“ 1948 bls. 96—97)
Þorskur og aðrar liskteg. Síld Samtals
(þús. tonn) (þús. t.) (þús. tonn)
1947: 260 217 477
1946: 236 132 368
1945: 270 60 330
1944: 290 222 512
Framleiðsla á óverkuðum saltfiski færðist mjög í aukana á
árinu, og fór hann að miklu leyti til Italíu og Grikklands.
F tflutningur lielztu sjávarafurða var þessi:
1947 1946
Saltfiskur ........... 26.922 tonn 47,1 ntillj. kr. 11.558 tonn 18,9 tnillj. kr.
ísfiskur ............. 61.121 — 42,7 — — 72.698 — 62,0 — —
Freðfiskur ........... 25.505 — 69,1 — — 23.998 — 61,0 — —
Fiskur, niðursoðinn . 340 — 1,4 — — 514 — 2,9 — —
S‘ld.................. 66.043 tn. 13,2 — — 158.662 tn. 23,0 — —