Eimreiðin - 01.10.1949, Qupperneq 23
EIMRKIÐIN
GESTUR
259
Um vorið skreiS Gestnr fram, grindhoraSur, skáldaður, hryggð-
armynd, með blaktandi augu. Um sumarið safnaði hann kröftum
nieð stóði inni á afréttum. Um haustið var hann seldur í þrældóm
til Englands.
Þetta var á stríðsárunum. Skipið, sem flutti Gest xir landi, var
skotið í kaf við Skotlandsstrendur.
Sjónarvottur sagði, að frá skipinu liefði synt rauður hestur,
glófextur, með hvíta stjörnu í enninu. Bárukrakkaldið brotnaði
a brjóstum hans. Hann stefndi norður til Islands.
Og hann hefur komizt heim“.
Málhvíld. Snjóliríðin liamast, myrkrið er orðið glórulaust. Mað-
Wrinn byrjar að tala á ný, hvíslar, eins og þegar gælt er við barn:
^hegar ég stíg út úr gjörningaþoku þessarar tilveru, þá leita
eg mn í faðm leyndardómsfullra fjalla — fjallanna minna. Og
eg skynja hófaslátt á hörðum valllendisbökkum við silfurtæra
bergvatnsá.
Uar ert þú — Gestur — á ferð, bnarreistur með flaxandi fax,
Ujáls og fagur mætir þú mér, eins og hlýr andblær, mettaður ilmi
'ors og sólar. Þú hneggjar hátt og fagnandi, leggur höfuðið á öxl
mina. Augu þín sindra af fjöri og feginleik.
Við mætumst þarna hraustir og ungir í annað sinn“.
Skoðanakönnun Eimreiðarinnar 1948—1949.
ÚRSLIT.
■Spurningin, sem lögð var fyrir lesendurna, var á þessa leið: Hvern
hljið þér beztan rithöfund, sem nú er uppi með íslenzku þjóðinni?
Mls bárust Eimreiðinni 1224 svör við spurningunni, og skiptust at-
U’æðin niður á 16 höfunda. Þessir 4 höfundar fengu flest atkvæði:
DavíS Stefánsson frá Fagraskógi fékk 275 atkvæði, eða tæpl. 22,5%
aHra greiddra svara. Gunnar Gunnarsson 207 atkv., eða tæpl. 17% allra
greiddra svara. Halldór Kiljan Laxness 203 atkv., eða rúml. 16,5% allra
gt'etddra svara, og Kristmann GuSmundsson 196 atkv., eða rúml. 16%
ahra greiddra svara; aðrir höfundar minna.
Verðlaunin, sem heitið var í sambandi við könnun þessa, kr. 100,00,
e,m * hlut svaranda undir nafninu „Örn frá Steðja“, og er hlutaðeig-
®ndi beðinn að vitja eða láta vitja verðlaunanna sem fyrst í Bókastöð
'Ptreiðarinnar, Aðalstræti 6, Rvík.
Svo þakkar Eimreiðin öllum þeim, sem þátt tóku í skoðanakönnun
Pessari.